Skip to content Skip to footer

100% Angusborgarar – frá Stóra-Ármóti – 10 stk x 140 g

5.750 kr.

Hamborgarar af Aberdeen Angus holdanauti frá Stóra-Ármóti í Flóa. Kjötið er á bilinu 12-15% feitt. Nautið var látið hanga í 14 daga áður en það var unnið. Það þýðir meyrara kjöt.

Hamborgararnir eru frosnir og 5 saman í pakka. Alls 2 pk. x 700 g. Samtals 10 stk x 140 g = 1,4 kg.

Kílóverð: 4.107 kr. Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 575 krónur.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

54 á lager

Má bjóða þér ost, sósu eða annað?

Verð vöru: 5.750 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

10 stk. x 140 g hamborgarar úr 100% angus-nauti frá Stóra Ármóti í Flóa. Magninnkaup: 2 pakkar x 700 g. Samtals 1,4 kg. Kílóverð: 4.107 kr. Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 575 krónur. Frystivara.

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðu Aberdeen Angus holdanauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Kjötgæðin eru rómuð.

Angusnautin frá Nautastöðinni í Flóa eru notuð til að blanda við íslenska stofninn og efla nautgriparæktina hér á landi. Mynd/Nautís

Angus með yfirburði

Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður í sóttkví. Mynd / TB

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Kjöt af 100% angus-holdanauti – Hamborgarar, 12-15% feitir.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Magn

3kg., 4kg.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “100% Angusborgarar – frá Stóra-Ármóti – 10 stk x 140 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard