Skip to content Skip to footer

Angushakk frá Hvammi – litlir pakkar, 5 pk x 300 g

5.535 kr.

300 g af hakki í pakka. Kjörið fyrir lítil heimili. Litlir pakkar sem passa vel í frystinn og eru fljótir að þiðna. Alls 5 pk. x 300 g. Samtals 1,5  kg. 

Hakk af angus holdablendingkvígu frá Hvammi í Ölfusi. Kjötið er á bilinu 8-12% feitt. Gripurinn var látinn hanga í 18 daga áður en hann var unninn. Það þýðir meyrara kjöt og minni rýrnun á pönnunni.

Kílóverð: 3.690 kr. Frystivara. 

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við látum vita með SMS þegar sendingin þín er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

2 á lager

Flokkar: , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:36855

Lýsing

Ungnautahakk úr holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. Magninnkaup: 5 pakkar x 300 g. Samtals 1,5 kg. Kílóverð: 3.690 kr. Stykkjaverð á hverjum 300 g pakka er 1.107 kr. Frystivara

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af ungnautahakki með 8-12% fituinnihaldi:
Orka: 742 kJ, 153 kcal.
Prótein: 19,7 g
Fita: 8,3 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 3,7 g og ómettaðar 3,0 g
Kólestról: 61 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Hvammi er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Ungnautahakk, 8-12% feitt.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Bændurnir

Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen starfar í kjötiðnaði og sér um nautaeldið. Davíð er í landsliðshópi kjötiðnaðarmanna.

Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.

Davíð, sem vinnur sem kjötiðnaðarmaður hjá Ferskum kjötvörum í aðalstarfi, hefur þróað nautaeldið í Hvammi eftir veru sína á Hvanneyri.


Ungnautin í Hvammi í Ölfusi fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Myndir / TB

Frekari upplýsingar

Magn

3kg., 4kg.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Angushakk frá Hvammi – litlir pakkar, 5 pk x 300 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard