Brisketborgarar frá Stóra-Fjarðarhorni – 10 stk. – 2 pk.

6.250 kr.

Brisketborgarar með 25-30% fituinnihaldi frá bænum Stóra-Fjarðarhorni á Ströndum. Kjötið er af Angus-holdagrip.

Matland býður upp á hamborgara sem samanstanda af brisket og úrbeinuðum rifjum. Þetta eru afar djúsí borgarar en þeir eru feitir og betra að fara að öllu með gát við grillið.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Frystivara.

2 pk x 5 stk. Samtals 10 stk. x 140 g hamborgarar. Alls 1,4 kg. Kílóverð: 4.464 kr.  Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 625 krónur.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

15 á lager

Má bjóða þér sósu eða annað?

Verð vöru: 6.250 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni leggja mikla áherslu á fóðrun sinna gripa sem er lykillinn að því að framleiða gæðakjöt. Gripirnir fá fyrsta flokks hey og aðgang að kjarnfóðri. Þau fá líka töluvert af umfram-grænmeti sem framleitt er á búinu.


Á á Stóra-Fjarðarhorni eru nokkur holdanaut sem eru engin smásmíði. Mynd / Guðfinna Lára.

Sjálfbærni og engin sóun

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni taka þátt í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur umsjón með ásamt fleirum. Í því felst að bændurnir gera loftslagsáætlun sem miðar að því að gera búskapinn sem mest sjálfbæran eins og hægt er og sóa sem minnstu.


Á Stóra-Fjarðarhorni búa bændurnir Ágúst Helgi Sigurðsson og Guðfinna Lára Hávarðardóttir með börnum sínum. Mynd / Ásta Þórisdóttir.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af nautahryggvöðva:
Orka: 739 kJ, 177 kcal.
Próten: 21,5 g
Fita: 10,1 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4,2 g og ómettaðar 5,2
Kólestról: 66 mg
Kolvetni: 0

Varan

Kjötið frá Stóra-Fjarðarhorni er unnið á Hellu hjá kjötiðnaðarmönnum hjá fyrirtækinu Villt og alið ehf.

Frystivara.

Innihald: Hamborgarar, 25-30% fita. Angusgripur.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði á Ströndum.
Framleiðandi: Villt og alið ehf.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Kálfakótilettur - þyngdir

558 g, 618 g, 626 g, 634 g, 654 g, 672 g, 712 g, 740 g, 768 g, 772 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Brisketborgarar frá Stóra-Fjarðarhorni – 10 stk. – 2 pk.”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard