Skip to content Skip to footer

Fersk lambafille með fiturönd frá Miðhúsum á Ströndum

Price range: 4.091 kr. through 5.034 kr.

Fersk lambafille með fiturönd frá Miðhúsum. Einstök mýkt. Sannkallaður eðall á grillið. Tveir bitar í pakka.

Kjöt af nýslátruðu frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Úrbeinað og unnið hjá Villt og alið á Hellu. Kjöt sem fékk að hanga í 12 daga og er meyrt eftir því. Allt gimbrar sem slátrað var eftir páska. Gæðalömb frá bændunum Viðari Guðmundssyni og Barböru Guðbjartsdóttur.

Kælivara. Best fyrir 28. apríl.

Kílóverð er 7.990 krónur. Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:4.091 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Matland fær lambakjötið frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Þar búa hjónin Viðar Guðmundsson og Barbara Guðbjartsdóttir. Þau eiga fimm börn en einungis eitt þeirra er eftir á heimilinu. Hin eldri eru ýmist alflutt eða hálfflutt í burtu og stunda nám og vinnu fjarri heimahögunum. Auk þeirra Viðars, Barböru og drengjanna tveggja býr Guðmundur Kristinn faðir Viðars í næsta húsi.


Barbara og Viðar á sólríkum degi í sveitinni. Myndir / Úr einkasafni


Þorsteinn Óli, hrúturinn Skari Kveiksson og Unnur Erna.

Fjölskyldan flutti norður á Strandir haustið 2007 úr Borgarfirðinum og tók við sauðfjárrekstri í Miðhúsum. Í dag eru ríflega 500 vetrarfóðraðar ær í Miðhúsum auk þess sem Viðar og Barbara hafa komið sér upp litu kálfaeldi. Kálfarnir eru einstaklega blíðir og spakir, fá klapp svo gott sem daglega og Barbara syngur fyrir þá reglulega. Barbara og Viðar leggja mikla rækt í að hafa kálfana spaka og rólega því það skilar sér margfalt í kjötgæðum. Kálfarnir eru eingöngu aldir á grasi og hið sama má segja um sauðféð. Þær fá þó smá fóðurbæti eftir burð og þar til þær fara út í vorið. Ánum er sýnd hlýja og fá þær klapp og söng líka líkt og nautin og eru þær margar hverjar spakar og miklir karakterar. Hestar eru í Miðhúsum, flestir í eigu Guðmundar Kristins og einnig eru á bænum nokkrir border collie smalahundar.


Bærinn Miðhús í Kollafirði á Ströndum.

Um vörurnar

Upprunaland: Ísland
Pökkun og vinnsla: Villt og alið ehf. á Hellu.
Slátrað og unnið á Íslandi.
Sláturhús: Grímsstaðaket í Borgarbyggð.
Framleiðendur: Lambakjötið kemur frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Slátrun fer fram á Grímsstöðum í Borgarbyggð.
Sláturhús: Grímsstaðaket.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna í Reykjavík: Matland, Hrísateig 47 í Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Fille, þyngdir

512 g, 518 g, 522 g, 530 g, 532 g, 534 g, 552 g, 556 g, 566 g, 572 g, 630 g

Þér gæti einnig líkað við…