Skip to content Skip to footer

Fersk mínútusteik af 100% Angus frá Stóra-Ármóti

2.076 kr.3.164 kr.

Mínútusteikur af 100% angusnauti frá nautgriparæktarstöðinni á Stóra-Ármóti. Kjötið er vel hangið en það fékk 18 daga í meyrnun áður en það var unnið. Þetta er kjöt sem þú steikir örsnöggt á pönnu eða grillar stutta stund. Köld eða heit sósa, kartöflur og salat: Þú ert komin/n með frábæra máltíð á örskotsstundu!

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er aðeins 4.990 krónur. Kælivara.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:59977

Lýsing

Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.

Mínútusteikur. Kílóverð: 4.990 kr. Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð. Kælivara.

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus bola frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt. Gripurinn var látinn hanga í 18 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus er kjötframleiðslukyn Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.

Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fyrirmyndar aðstæður. Myndir / TB

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Mínútusteikur af angusnauti
Upprunaland: Ísland Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Mínútusteikur

416 g, 478 g, 482 g, 496 g, 508 g, 512 g, 512 g, 514 g, 520 g, 524 g, 528 g, 528 g, 540 g, 542 g, 546 g, 554 g, 556 g, 566 g, 568 g, 570 g, 572 g, 580 g, 588 g, 594 g, 616 g, 634 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fersk mínútusteik af 100% Angus frá Stóra-Ármóti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard