Skip to content Skip to footer

Pottsteik af 100% Angus frá Stóra-Ármóti

Price range: 7.458 kr. through 9.148 kr.

Pottsteik af 100% hreinum Anguskúm frá nautgriparæktarstöðinni á Stóra-Ármóti.

Frystivara.

Kjötið er vel hangið en það fékk 18 daga í meyrnun áður en það var unnið.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er aðeins 5.790 krónur.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:57331

Lýsing

Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.

Pottsteik. Kílóverð: 5.790 kr.

Frystivara.

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus gripum frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.
Gripirnir voru látnir hanga í 18 daga til meyrnunar áður en þeir voru unnir í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus er kjötframleiðslukyn

Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.


Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður. Myndir / TB

Kjarnhiti nautgripakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75° 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:

Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Pottsteik af 100% Angus
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Pottsteik, þyngdir

1266 g, 1288 g, 1304 g, 1328 g, 1410 g, 1580 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Pottsteik af 100% Angus frá Stóra-Ármóti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…