Skip to content Skip to footer

Ferskar sirloinsteikur af 100% Angus frá Stóra-Ármóti

3.334 kr.5.952 kr.

Sirloinsteik af 100% hreinu Angus-ungnauti frá nautgriparæktarstöðinni á Stóra-Ármóti. Gripurinn er sá þyngsti sem Matland hefur fengið í sölu en fallþunginn reyndist 490,9 kg. Flokkunin var UNU3+. Áberandi vel fitusprengt kjöt og meyrt.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Kælivara. Best fyrir 27. maí.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 7.790 krónur.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:3.334 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:49466

Lýsing

Hreint 100% anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.

Sirloin-steik. Kílóverð: 7.790 kr.

Kælivara.

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðu Aberdeen Angus nauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.

Gripurinn hékk í 14 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus er kjötframleiðslukyn

Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi.  Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.


Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður. Myndir / TB

Kjarnhiti nautgripakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75° 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:

Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Sirloin af 100% angusnauti. Flokkun UNU3+
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

ÞyngdÁ ekki við
Sirloin

428 g, 442 g, 444 g, 474 g, 492 g, 496 g, 534 g, 570 g, 588 g, 722 g, 764 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskar sirloinsteikur af 100% Angus frá Stóra-Ármóti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…