Ferskir grillbitar á spjót frá Tyrfingsstöðum – 500 g

2.795 kr.

Grillbitar á spjót af Angus-holdauxum frá Tyrfingsstöðum. Frábært að þræða upp á spjót og grilla með uppáhalds grænmetinu þínu.

Á Tyrfingsstöðum er stundaður auðgandi landbúnaður þar sem áhersla er lögð á að bæta jarðveginn með aðstoð jórturdýra. Gripirnir eru eingöngu gras- og heyfóðraðir.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Kælivara. Best fyrir 19. ágúst.

Um 500 grömm í pakka.  Kílóverð er 5.590 krónur. Hver pakki kostar 2.795 kr. 

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á sjálfsafgreiðslustaði Pikkoló. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

15 á lager

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 2.795 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Tyrfingur Sveinsson og Hulda Brynjólfsdóttir eru bændur í Lækjartúni / Tyrfingsstöðum í Ásahreppi. Þau búa með holdakýr, sauðfé og hænur ásamt því að reka ullarvinnslu. Auk þeirra starfa dóttir þeirra; Anna Guðrún og tengdasonur Þráinn að hluta til við búið ásamt Guðlaugi, Janneke og Agnesi Fríðu sem öll stökkva til þegar aðstoðar er þörf.


Tyrfingur og Hulda leggja mikla áherslu á dýravelferð og heilbrigði og að öll dýr séu sem mest í sínum náttúrulegu aðstæðum.

Tyrfingur er meistari í vélvirkjun, en Hulda er búfræðingur og kennari. Þau stunda auðgandi landbúnað á jörð sinni, þar sem aðaláherslan er lögð á að bæta jarðveginn með aðstoð jórturdýra og til þess notast þau við beitarstýringar eftir nákvæmu skipulagi.
Þau reka fyrirtækið Sveitakarlinn sem selur vörur beint frá býli undir því merki og er neytendahópurinn stór og fer stöðugt stækkandi enda vilja neytendur fá heilnæmar vörur sem eru framleiddar við kjöraðstæður.


Við fóðrun gripanna á Tyrfingsstöðum er útivera og graseldi langmikilvægast. Þeim er ekki gefið korn eða fóðurbætir nema í undantekningartilvikum.


Þeir gripir sem nú koma til Matlands eru uxar sem voru geltir 6 mánaða gamlir af dýralækni og hafa gengið úti síðan. Myndir/Tyrfingsstaðir

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Tyrfingsstöðum er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Grillbitar á spjót af holdauxum, ungnautakjöt
Upprunaland: Ísland. Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Tyrfingsstöðum
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

 

Frekari upplýsingar

Sirloinsteikur, þyngdir

358 g, 392 g, 440 g, 480 g, 490 g, 490 g, 500 g, 516 g, 522 g, 522 g, 544 g, 692 g, 702 g, 702 g, 706 g, 712 g, 812 g, 820 g, 856 g, 900 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskir grillbitar á spjót frá Tyrfingsstöðum – 500 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard