Lýsing
Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.
Brisket. Kílóverð: 3.190 kr.
Frystivara.
Hvernig er best að elda nautabrjóst?
Nautabrjóst sem á ensku nefnist “brisket” er vinsæll biti víða um heim. Í Bandaríkjunum nálgast það trúarbrögð hvernig brisket er reykt og grillað. Þar sem vöðvinn er mjög grófur þarf að elda nautabrjóst lengi og vel. Ýmist er hægt að búa til haustlegar kássur úr bitanum, þá með því að skera í gúllasbita og gera t.d. hinn klassíska “beef bourguignon” eða hreinlega hægelda í marga klukkutíma í heilu lagi, reykja og grilla.
Við hjá Matlandi mælum með að fólk helli sér í rannsóknastörf á netinu og finni viðeigandi uppskriftir sem henta hverju tilefni.
- Hér er uppskrift frá Evu Laufey Kjaran þar sem hún hægeldar naut.
- Og önnur fyrir lengra komna sem vilja reyna sig við reykingu og hægeldun á heilum bita.
Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. 1-2 klst. áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.
Það er búið að skrifa margar bækur um hið fullkomna brisket.
Hægeldað nautabrjóst sett í reyk á grilli. Eftir nokkra tíma þar er það látið hvíla.
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus kúm frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.
Gripirnir voru látnir hanga í 16 daga til meyrnunar áður en þeir voru unnir í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.
Angus er kjötframleiðslukyn
Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.
Kjarnhiti nautgripakjöts
Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Brisket af anguskúm
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.