Innralæri – roastbeef – frá Reykjahlíð

Price range: 7.549 kr. through 11.394 kr.

Innralæri af uxum frá Reykjahlíð á Skeiðum. Meyrt og safaríkt kjöt sem fékk að hanga í 14 daga. Kjöt sem hentar frábærlega í roastbeef.

Kílóverð: 6.990 kr.

Frystivara. Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:76540

Lýsing

Eldunarleiðbeiningar

Hún Katla Gunnarsdóttir smurbrauðsjómfrú kennir okkur að elda roastbeef hér.

Innralærið er vel saltað og piprað. Síðan steikt á pönnu á háum hita, því næst í ofninn á 225°C, alla jafna eru 20-25 mínútur nóg – en fer þó eftir stærð bitans. Til að vera alveg viss er gott að nota kjöthitamæli og taka kjötið út við 53-55 gráður.

Kjötið er eldað daginn áður en það er sneitt niður. Það er mikilvægt að kjötið hvíli vel í kæli áður en það er skorið í þunnar sneiðar.

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af nautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru bændur í Reykjahlíð. Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm:
Orka: 834 kJ, 199 kcal.
Próten: 19,0 g
Fita: 13,8 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,6 g og ómettaðar 6,4
Kólestról: 63 mg
Kolvetni: 0
Vatn: 65,8 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Ungnaut (UN). Uxakjöt – innralæri
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Roastbeef, þyngdir

1080 g, 1084 g, 1118 g, 1142 g, 1192 g, 1208 g, 1228 g, 1230 g, 1252 g, 1312 g, 1356 g, 1360 g, 1382 g, 1630 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Innralæri – roastbeef – frá Reykjahlíð”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard