Roast beef af Angus frá Stóra-Ármóti

Price range: 6.654 kr. through 8.947 kr.

Innralæri af hreinum Angus-ungnautum frá nautgriparæktarstöðinni á Stóra-Ármóti. Þetta er biti sem hentar hvað best í að útbúa roast beef.

Þyngdir eru á bilinu 950-1280 g. Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Kælivara. Best fyrir 11. ágúst. Takmarkað magn. Kílóverð er 6.990 krónur.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

 

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 6.654 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Hvernig er best að elda innralæri og útbúa roast beef?

Það er ýmist hægt að heilsteikja innralæri og gera klassískt roast beef eða hluta í steikur. Skerið kjötið í þá þykkt af sneiðum sem henta þínum smekk.

Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.

Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið, 2-3 dagar er mátulegt. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Einföld aðferð við að elda roast beef/innralæri í heilum bitum er að hefja steikingu á mjög heitri pönnu, loka kjötinu með því að steikja upp úr smjöri og olíu. Setjið síðan í ofn við 180°C þar til kjarnhiti nær 55-60°C. Það er líka ágætt að hægelda á minni hita, t.d. 140°C en þá er eldunartíminn vitaskuld lengri. Vefjið kjötið inn í álpappir svo hitinn haldist í því og setjið viskustykki yfir. Látið kjötið hvíla við stofuhita í 10 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.

Ef nota á roast beef á samlokur eða í smurbrauðsgerð er kjötið alltaf skorið í örþunnar sneiðar þegar búið er að kæla það yfir nótt.


Það eru fáir sem standast gott roast beef brauð. Mynd / Katla Gunnarsdóttir

Kjarnhiti nautgripakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75° 

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus nautum frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.

Gripurinn var látinn hanga í 14 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus með yfirburði

Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.


Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður. Myndir / TB

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:

Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Innralæri af 100% Angus ungnauti.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Roast beef, þyngdir

952 g, 1030 g, 1042 g, 1090 g, 1118 g, 1230 g, 1264 g, 1280 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Roast beef af Angus frá Stóra-Ármóti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard