Lýsing
Afhending miðvikudaginn 17. september
Hreint og meyrt kjöt
Folaldakjöt er afar holl, hrein og bragðgóð fæða. Það er mýkra og ljósara en hrossakjöt og vöðvaþræðirnir allir mikið fínni. Folöldin koma í heiminn á vorin og ganga undir mæðrum sínum út sumarið og fram á haust.
Í meyrnimælingum Matís hefur folaldakjöt komið mjög vel út. Í umfjöllun Bændablaðsins um rannsókn, sem gerð var árið 2018, kom fram að meyrni folaldavöðva breytist lítið frá slátrun. Strax á þriðja degi er kjötið meyrt og helst þannig fram á 14. dag og verður enn meyrara með tímanum. „Í samanburði við lambakjöt eru vöðvarnir svipað meyrir úr lambi og folaldi á sjöunda degi frá slátrun, þótt á heildina litið sé folaldakjötið örlítið meyrara. Munar þar mest um meyrni hryggvöðva og lunda úr folaldaskrokknum,“ sagði í umfjöllun Bændablaðsins sem bar yfirskriftina „Staðfest gæði folaldakjötsins“.
Kjötmyndir frá Matís.
Aðrar upplýsingar
Folaldakjötið frá Böðmóðsstöðum er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.
Innihald: 1/2 skrokkur af úrbeinuðu folaldakjöti
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Böðmóðsstöðum í Bláskógabyggð
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is