Skip to content Skip to footer

Gúllas af Angus frá Gerðum – 2 x 500 g

4.920 kr.

Ungnautagúllas frá bænum Gerðum í Flóa. 2 pk x 500 g = 1 kg. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga fyrir vinnslu sem gerir kjötið meyrara.

Unnið hjá Villt & alið á Hellu. Frystivara.

2 pk x 500 g = 1 kg. Kílóverð er 4.920 krónur.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

6 á lager

Lýsing

Bændurnir

Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.


Fallegir Angus holdagripir úti á túni. Aberdeen Angus eru rómaðir fyrir gott skap og eru þægilegri í umgengni en ýmis önnur nautgripakyn. Myndir / Bændur í Gerðum


Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af kvígum, Angus-holdagripum, frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Ungnautagúllas af Angus frá Gerðum.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Mínútusteikur, þyngdir

458 g, 482 g, 490 g, 490 g, 494 g, 502 g, 502 g, 512 g, 528 g, 532 g, 532 g, 532 g, 534 g, 540 g, 556 g, 572 g, 596 g, 596 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Gúllas af Angus frá Gerðum – 2 x 500 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…