Skip to content Skip to footer

Lambagrillsneiðar frá Engihlíð

Price range: 2.510 kr. through 3.140 kr.

Grillsneiðar úr lambaframparti frá Engihlíð í Vopnafirði. Kjöt af vænum lömbum sem fengu að hanga í 2 sólarhringa eftir slátrun í handverkssláturhúsinu á Refsstað. Ekkert krydd né marinering – bara hreinar grillsneiðar.

Grillsneiðarnar eru af framparti og sagaðar í hentuga bita. Þyngdir á hverri pakkningu á bilinu 590 til 1.200 grömm.  Kílóverð 2.740 kr.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Afgreiðum samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Veldu hér undir þá þyngd sem þú óskar eftir.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Merkimiðar: , , Vörunúmer:79814

Lýsing

Bændurnir

Í Engihlíð búa Gauti Halldórsson og Halldóra Andrésdóttir með fjölbreyttan búskap. Þau taka þátt í verkefninu “Loftslagsvænn landbúnaður” og hafa í tengslum við það endurheimt votlendi á 90 hektara svæði, grætt upp land og plantað um 10 þúsund trjám árlega á jörðinni. Í næsta nágrenni er sláturhúsið á Refsstað, einungis 600 metra frá bænum. Það þýðir að ekki þarf að aka með lömbin til slátrunar nema í nokkrar mínútur.

Engihlíð er nýbýli út úr jörðinni Svínabökkum, stofnað seint á sjötta áratug síðustu aldar af foreldrum núverandi ábúenda. Aðalbúgrein er mjólkurframleiðsla, um 400.000 lítrar á ári auk framleiðslu nautakjöts og dilkakjöts. Þá er lítilsháttar æðarvarp og einnig er stofnræktun á íslensku landnámshænunni, svokölluðum Andrésarstofni. Minkarækt var stór hluti rekstursins frá 1984-2017 en þá var henni hætt í kjölfar mikillar verðlækkunar á skinnum. Nytjaskógrækt hófst 2013 á 199 hekturum lands í Vatnsdalsgerði en sú jörð var keypt með allri áhöfn og framleiðslurétti árið 2005. Beitarskógur er í Engihlíð á 18 hekturum lands. (Heimild: Loftslagsvænn landbúnaður)

Varan

Frystivara.

Næringargildi í 100 g:
Orka 1520 kj / 364 kkal
Fita 34,5 g
Kolvetni 4,8 g
Prótein: 14,5 g

Innihald: Lambakjöt. Grillsneiðar úr framparti.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Engihlíð í Vopnafirði
Framleiðandi: Engihlíð
Sláturhús: Sláturhúsið á Refsstað í Vopnafirði
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Grillsneiðar, þyngdir

590 g, 916 g, 932 g, 950 g, 964 g, 978 g, 986 g, 986 g, 994 g, 998 g, 1028 g, 1052 g, 1054 g, 1068 g, 1076 g, 1102 g, 1128 g, 1136 g, 1146 g, 1180 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Lambagrillsneiðar frá Engihlíð”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…