Lýsing
Varan
Lambakjötið frá Böðmóðsstöðum fékk að hanga í 10 daga. Við það að hanga verður kjötið meyrara.
Kjötið er frosið.
Eldunarleiðbeiningar
Það er smekksatriði hvernig fólk kýs að elda lambakjöt. Kjötið frá Böðmóðsstöðum fékk að hanga í tíu daga og er fullmeyrnað. Það þarf því ekki að láta það bíða lengi í kæli eftir að það hefur verið þítt.
Matland mælir með því að hægelda lambaskankana. Tímalengd eldunar fer eftir hita og stærð kjötbitanna. Mælt er með því að nota kjöthitamæli við eldunina.
Eftirfarandi kjarnhita er gott að miða við þegar lambakjöt er tekið út úr ofni:
Lambakjöt – lítið steikt (medium rare) = 65°
Lambakjöt – meðal steikt (medium) = 70°
Lambakjöt – gegnsteikt (well done) = 75°
Munið að láta kjötið hvíla eftir að það er tekið út úr ofni í a.m.k. 10 mínútur.
Bændurnir
Á Böðmóðsstöðum býr Hulda Karólína Harðardóttir en synir hennar þeir Styrmir og Hrannar eru henni innan handar í búskapnum. Sauðféð á Böðmóðsstöðum er sérstakt að því leyti að það er einstaklega vænt og hraustbyggt. Jón Þormar Pálsson, heitinn, eiginmaður Huldu var sérlega áhugasamur um ræktun og lagði sig fram um að rækta kraftmikið fé. Meðal annars voru farnar ferðir norður á Strandir til að sækja hrúta og ófáum stundum var varið í að „stúdera“ hvernig mætti ná fram réttum eiginleikum. Féð frá Böðmóðsstöðum er frægt í sinni sveit og langt utan hennar.
Guðmar Jón Tómasson, kjötiðnaðarmaður hjá Villt & alið á Hellu, og æskuvinur Jóns Þormars þekkir vel til fjárins frá Böðmóðsstöðum og hefur um árabil verkað lambaskrokka frá bænum, úrbeinað þá og pakkað. Hann lætur þá hanga í 10 daga fyrir verkun til þess að auka meyrni og ná meiri bragðgæðum. Einstakt kjöt – þú finnur muninn!
Um vörurnar
Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Villt & alið á Hellu. Dreifing á höfuðborgarsvæðinu: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Slátrað og unnið á Íslandi, haustið 2025.
Sláturhús: SS á Selfossi.
Framleiðendur: Lambakjötið kemur frá bænum Böðmóðsstöðum í Bláskógabyggð.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna í Reykjavík: Matland, Hrísateig 47 í Reykjavík.