Skip to content Skip to footer

Nautasnitsel af grasfóðruðum Angus frá Holti

2.286 kr.2.763 kr.

Snitsel af Angus-holdablendingskvígum frá bænum Holti í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu.

Gripir sem voru eingöngu grasfóðraðir. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir kjötið meyrara. Kjötmeistararnir hjá Villt & alið á Hellu skáru kjötið, snyrtu og pökkuðu.

Frystivara.

Kílóverð er 4.590 krónur.  Veldu þá þyngd sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:55582

Lýsing

Nautasnitsel. Kílóverð: 4.590 kr. Frystivara.

Bændurnir

Í Holti í Álftaveri í Skaftárhreppi reka tvær kynslóðir blandað bú með mjólkurkýr, sauðfé og holdagripi ásamt hrossum. Ábúendur í félagsbúinu Holti eru Konný Sif Gottsveinsdóttir, Þorbergur Jónsson, Gottsveinn Eggertsson og Svana Sigurjónsdóttir.

Holdakýr og kvígur ganga úti fyrir opnu allt árið um kring og holdagripirnir eru einungis fóðraðir á grasi/heyi. Mynd / Úr einkasafni

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af holdablendingskvígum frá bænum Holti í Álftaveri og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu. Flokkunin á kvígunum var UN0+ og fituflokkun 2+ og 3-. Fallegir skrokkar og hæfilega feitir.

Innihald: Snitsel.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard