Lýsing
Hvernig er best að elda nautarif?
Nautarif krefjast langrar eldunar og það er best að hafa þolinmæðina með í för þegar þau eru matreidd.
Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.
Fjórar aðferðir sem Matland mælir með:
- Sjóðið rifin í potti. Setjið bjór, vatn, grænmeti og krydd í pott ásamt rifjunum og látið malla við lágan hita í 3 klst. Skellið svo rifjunum á snarkheitt grill og penslið með bbq-sósu.
- Rifin sett í eldfast mót í ofn. Látið bjór í botninn ásamt grænmeti og kryddi. Hafið ofninn í 100-120°C og látið malla í a.m.k. 3 klst. Passið að bleyta jafnt og þétt og ekki láta þorna. Hækkið hitann í lokin til þess að ná upp skorpu.
- Reykið og eldið rifin í reykofni eða smoker. Eldið í 100-120°C hita í 3 klst. Takið rifin að því loknu og stráið púðursykri, salti og pipar á bitann. Vefjið í álpappír eða sérstakan smjörpappír og hendið aftur inn í hitann í 1 klst.
- Þegar Klúbbur matreiðslumeistara hélt hátíðarkvöldverð um áramót voru nautarif frá Hvammi fyrir valinu. Þá voru þau sett í saltpækil í um 15 klst. og síðan sous-viduð á 79°C í 15-20 klst. Eftir það voru rifin kæld niður, beinin tekin af og bitarnir grillaðir á háum hita og penslaðir með unagi-gljáa. Skoðið nánar upplýsingar um aðferðina og uppskriftina hér.
Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Rifin sem meðlimir í Klúbbi matreiðslumeistara elduð við hátíðarkvöldverð um áramót. Sjá lýsingu og uppskrift.

Bændurnir
Á Neðri-Vindheimum í Hörgárdal búa bændurnir Kristbjörg og Björn ásamt börnum sínum fjórum. Þar reka þau saman blandað bú með holdakúm, kindum og hrossum. Kýrnar eru allar hýstar yfir vetrartímann líkt og kindurnar. Við burð á vorin fara þær út með kálfa sína fram á haust. Bændurnir í Vindheimum hafa lagt mikla áherslu á að bæta kjötframleiðsluna á síðustu árum. Þau hafa markvisst byggt búskapinn upp með Angus-gripum sem gefur aukinn vaxtarhraða og meiri kjötgæði.

Holdagripir af Angus-kyni á Vindheimum í Hörgárdal.
Aðrar upplýsingar
Kælivara.
Innihald: Rifjasteikur á beini. Kjöt af 100% Angus-nauti.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Vindheimum
Framleiðandi: Villt og alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhús Norðlenska
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.