Lýsing
Eldunarleiðbeiningar

Kjötsúpa Matlands – uppskrift fyrir 6-8 manns
Hráefni
2 kg lambakjöt á beini
4-5 l vatn
6 stk. kartöflur
2 stk. blaðlaukur
6 stk. gulrætur
2 stk. meðalstórar rófur
1 búnt af steinselju
160 g sellerí
1 gulur laukur
Þurrkaðar súpujurtir eftir smekk.
Salt og pipar eftir smekk
Valkvætt: 1 dl hrísgrjón, perlubygg eða haframjöl (má sleppa).
Aðferð
Látið kjötbitana (sem eru með beini) í kalt vatn og látið suðuna koma upp og sjóðið í nokkrar mínútur. Fleytið þá af alla froðu og eggjahvítuefni sem koma upp á yfirborðið. Ef þið viljið tærari súpu er ágætt ráð að hætta suðunni eftir 5 mínútur, hella vatninu í vaskinn og skola bitana í sigti. Byrja svo aftur með nýtt kalt vatn og láta suðuna koma upp. Fleytið af auka fitu ef þið viljið fituminni súpu. Látið malla í um 30-45 mínútur.
Saxið lauk, blaðlauk og steinselju. Skerið rófur, sellerí og gulrætur í jafna bita og setjið allt út í súpuna ásamt þurrkuðum súpujurtum. Kryddið með salti og pipar. Látið sjóða við lágan hita í a.m.k. hálfa klukkustund til viðbótar. Kartöflurnar er ráðlegt að sjóða sér, flysja, skera í bita og bæta við í restina.
Það er smekksatriði hvað fólk vill hafa grænmetið mikið eldað. Ef þið viljið hrísgrjón, perlubygg eða haframjöl út í súpuna þá er best að setja þau hráefni út í þegar 20 mínútur eru eftir af suðutímanum.
Bændurnir
Í Engihlíð búa Gauti Halldórsson og Halldóra Andrésdóttir með fjölbreyttan búskap. Þau taka þátt í verkefninu “Loftslagsvænn landbúnaður” og hafa í tengslum við það endurheimt votlendi á 90 hektara svæði, grætt upp land og plantað um 10 þúsund trjám árlega á jörðinni. Í næsta nágrenni er sláturhúsið á Refsstað, einungis 600 metra frá bænum. Það þýðir að ekki þarf að aka með lömbin til slátrunar nema í nokkrar mínútur.

Engihlíð er nýbýli út úr jörðinni Svínabökkum, stofnað seint á sjötta áratug síðustu aldar af foreldrum núverandi ábúenda. Aðalbúgrein er mjólkurframleiðsla, um 400.000 lítrar á ári auk framleiðslu nautakjöts og dilkakjöts. Þá er lítilsháttar æðarvarp og einnig er stofnræktun á íslensku landnámshænunni, svokölluðum Andrésarstofni. Minkarækt var stór hluti rekstursins frá 1984-2017 en þá var henni hætt í kjölfar mikillar verðlækkunar á skinnum. Nytjaskógrækt hófst 2013 á 199 hekturum lands í Vatnsdalsgerði en sú jörð var keypt með allri áhöfn og framleiðslurétti árið 2005. Beitarskógur er í Engihlíð á 18 hekturum lands. (Heimild: Loftslagsvænn landbúnaður)

Varan
Frystivara.
Næringargildi í 100 g:
Orka 1520 kj / 364 kkal
Fita 34,5 g
Kolvetni 4,8 g
Prótein: 14,5 g
Innihald: Lambakjöt. Súpukjöt úr framparti.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Engihlíð í Vopnafirði
Framleiðandi: Engihlíð
Sláturhús: Sláturhúsið á Refsstað í Vopnafirði
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is






Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.