Skip to content Skip to footer

Ungnautahakk frá Hvammi, 8-12% – 5 x 500 g

8.725 kr.

Matland býður upp á hreint ungnautahakk með 8-12% fituinnihaldi. Kjötið er af holdmikilli Angus-blendingskvíga. Kjötið fékk að hanga 18 daga. Það þýðir meyrara og bragðmeira kjöt.

5 pakkar x 500 g = 2,5 kg af hakki. Þunnar umbúðir sem rúmast vel í frysti.

Verð: 8.725 krónur. Kílóverð: 3.490 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

6 á lager

Lýsing

Fyrsta flokks kjöt af holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. 

Hakk, 8-12% fituinnihald. Kílóverð: 3.490 kr.

Frystivara.

Bændurnir

Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen starfar í kjötiðnaði og sér um nautaeldið. Davíð er í landsliðshópi kjötiðnaðarmanna.

Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.

Davíð hefur þróað nautaeldið í Hvammi eftir veru sína á Hvanneyri.

Aðrar upplýsingar

Frystivara.

Innihald: Ungnautanaut, holdablendingskvíga. 75% Angus. Hakk 8-12% fita
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Villt og alið ehf. á Hellu
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ungnautahakk frá Hvammi, 8-12% – 5 x 500 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard