Deila þessari síðu
Hráefni
- 1 ½ l kalkúnasoð eða vatn og kalkúnakraftur eða kjúklingakraftur
- 1 msk. ostrusósa
- 1 msk. fiskisósa
- 4 msk. sérrí, má sleppa
- 1 msk. engiferrót, smátt söxuð
- ½ sítrónugras, rifið, má sleppa
- 2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
- ½ chili, steinlaust og smátt saxað
- safi og fínt rifinn börkur af einni límónu
- 400 g grænmeti, t.d. gulrætur, baunir, dvergmaís, laukur, paprika
- 300 g soðnar núðlur eða pasta
- 4-6 msk. kóríander, smátt saxað
- 300 g afgangs kalkúnakjöt í teningum
Aðferð
1. Setjið allt nema kalkúnakjöt, núðlur og kóríander í pott og sjóðið í 5 mín.
2. Bætið núðlum og kalkúnakjöti í pottinn og sjóðið í 4 mín.
3. Stráið kóríander yfir og berið fram með góðu brauði.
/Birt með góðfúslegu leyfi bændanna á Reykjabúinu. Fleiri kalkúnauppskriftir er að finna á kalkunn.is