Deila þessari síðu
Lambakjöt nýtur sín sérlega vel í gúllasréttum. Það er svo mjúkt og bragðgott – og klikkar bara alls ekki! Hér er uppskrift að gamla góða gúllasinu í brúnu sósunni.
Hráefni
1 kg lambasmásteik, framhryggur eða súpukjöt
2 laukar
4 gulrætur
75 g smjörlíki
4 msk hveiti
0,75 l kjötsoð eða vatn
2 lárviðarlauf
1 tsk paprikuduft
1/2 tsk nýmalaður pipar
1/4 tsk Allrahanda krydd (má sleppa)
salt
sósulitur
Aðferð
Kjötið skorið í hæfilega bita og fituhreinsað (eftir smekk hvers og eins).
Laukarnir skornir í sneiðar og gulræturnar skafnar og skornar í bita.
25 g af smjörlíki brædd á pönnu og laukurinn steiktur þar til hann er farinn að brúnast en þá er honum hellt yfir í þykkbotna pott.
Afgangurinn af smjörlíkinu bræddur á pönnunni. Kjötinu velt upp úr hveitinu og það síðan brúnað við góðan hita (afgangurinn af hveitinu geymdur).
Kjötið er næst sett í pottinn með lauknum.
Dálitlu af soðinu eða vatninu hellt á pönnuna, látið sjóða rösklega í 1-2 mínútur og botninn á pönnunni skafinn á meðan með spaða. Hellið því síðan yfir kjötið. Afganginum af soðinu er svo bætt í pottinn ásamt gulrótum og kryddi.
Hitað að suðu og látið malla við fremur lágan hita undir loki í 45-50 mínútur.
Afgangurinn af hveitinu settur í hristiglas ásamt dálitlu köldu vatni, hrist vel saman og síðan hrært saman við soðið til að þykkja. Látið malla í 5-10 mínútur í viðbót.
Sósan er svo smökkuð til með pipar og salti og lituð með sósulit.
Borið fram t.d. með kartöflustöppu, grænum baunum, rabarbarasultu, rauðkáli og hrásalati.
/Birt með góðfúslegu leyfi Icelandic Lamb.