Skip to content Skip to footer

Lífrænt lambaprime frá Sölvanesi

1.786 kr.2.023 kr.

Matland býður upp á lífrænt vottað lambakjöt frá bænum Sölvanesi í Skagafirði. Lambaprime, 2 stk. í pakka.

Þú velur þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.  Kílóverð: 5.915 kr.

Kjötið er frosið og fullmeyrnað. Takmarkað magn.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:38018

Lýsing

Lambaprime, lífrænt vottað. Kílóverð: 5.915 kr.

Frystivara.

Bændurnir

Sölvanes er sauðfjárbú á Fremribyggð í Skagafirði, 20 km sunnan við Varmahlíð. Þar búa Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir. Þau keyptu búið árið 2013 og eru nú með lífræna vottun á framleiðslunni. Féð gengur í Hamraheiði ofan við bæinn á sumrin.
Hjónin vinna vörurnar sjálf í Vörusmiðju Biopol á Skagaströnd og allt kjöt er látið hanga fyrir frystingu. Á bænum eru einnig nokkur hross og þar er rekin ferðaþjónusta. Kjötið frá Sölvanesi hefur um nokkurt skeið verið á matseðli á veitingastaðnum Kaffi Laugalæk sem er í sama húsi og Matland.

Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir.

Sölvanes í Skagafirði. /Myndir úr einkasafni.

Í Sölvanesi er einnig gistihús þar sem hægt er að fá uppbúin rúm eða svefnpokapláss ásamt morgunmat ef óskað er. Boðið er upp á sveitaheimsóknir allt árið um kring fyrir einstaklinga og hópa. Þá er hægt að fræðast um sveitina, skoða kindurnar og jafnvel fleiri dýr eins og hross, hænur, hund og kött og fá kaffisopa eða kakó á eftir. Heimsóknir þarf að panta fyrirfram.

Eldunarleiðbeiningar

Það er smekksatriði hvernig fólk kýs að elda lambakjöt. Kjötið frá Sölvanesi hefur fengið að hanga og er fullmeyrnað. Við mælum með að grilla kjötið eða steikja á pönnu. En það er líka hægt að elda það í ofni ef fólk vill.

Eftirfarandi kjarnhita er gott að miða við þegar lambakjöt er tekið út úr ofni:

Lambakjöt – lítið steikt (medium rare) = 65°
Lambakjöt – meðal steikt (medium) = 70°
Lambakjöt – gegnsteikt (well done) = 75°

Munið að láta kjötið hvíla eftir að það er tekið út úr ofni í a.m.k. 10 mínútur.

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Sölvanesi er unnið og pakkað í Vörusmiðju Biopól á Skagaströnd.

Frystivara.

Innihald: Lífrænt vottað lambakjöt. Lambaprime.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Sölvanesi
Framleiðandi: Bændurnir í Sölvanesi hjá Biopol á Skagaströnd
Sláturhús: Sláturhús SAH
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Lambaprime

302 g, 312 g, 314 g, 316 g, 326 g, 338 g, 342 g

Þér gæti einnig líkað við…