Lýsing
Hvernig er best að elda nautarif?
Nautarif krefjast langrar eldunar og það er best að hafa þolinmæðina með í för þegar þau eru matreidd.
Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.
Fjórar aðferðir sem Matland mælir með:
- Sjóðið rifin í potti. Setjið bjór, vatn, grænmeti og krydd í pott ásamt rifjunum og látið malla við lágan hita í 3 klst. Skellið svo rifjunum á snarkheitt grill og penslið með bbq-sósu.
- Rifin sett í eldfast mót í ofn. Látið bjór í botninn ásamt grænmeti og kryddi. Hafið ofninn í 100-120°C og látið malla í a.m.k. 3 klst. Passið að bleyta jafnt og þétt og ekki láta þorna. Hækkið hitann í lokin til þess að ná upp skorpu.
- Reykið og eldið rifin í reykofni eða smoker. Eldið í 100-120°C hita í 3 klst. Takið rifin að því loknu og stráið púðursykri, salti og pipar á bitann. Vefjið í álpappír eða sérstakan smjörpappír og hendið aftur inn í hitann í 1 klst.
- Þegar Klúbbur matreiðslumeistara hélt hátíðarkvöldverð um áramót voru nautarif frá Hvammi fyrir valinu. Þá voru þau sett í saltpækil í um 15 klst. og síðan sous-viduð á 79°C í 15-20 klst. Eftir það voru rifin kæld niður, beinin tekin af og bitarnir grillaðir á háum hita og penslaðir með unagi-gljáa. Skoðið nánar upplýsingar um aðferðina og uppskriftina hér.
Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Rifin sem meðlimir í Klúbbi matreiðslumeistara elduð við hátíðarkvöldverð um áramót. Sjá lýsingu og uppskrift.

Bændurnir
Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.

Fallegir Angus holdagripir úti á túni. Aberdeen Angus eru rómaðir fyrir gott skap og þægilegri í umgengni en ýmis önnur nautgripakyn. Myndir / Bændur í Gerðum

Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður.
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið er af kvígum frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Nautarif.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is



Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.