Skip to content Skip to footer

Brisketborgarar (20-25%) frá Reykjahlíð – 10 stk.

5.950 kr.

Brisketborgararnir frá Reykjahlíð á Skeiðum eru úr uxakjöti sem er bæði meyrt og safaríkt.

Nautbrjóst (e. brisket) er notað í borgarana auk úrbeinaðra rifja. Kjötið er á bilinu 25-30% feitt – safaríkt og bragðgott! Þetta eru hamborgararnir sem veitingamenn mæla með á grillið.

Gripirnir fengu að hanga í 14 daga fyrir vinnslu. Það þýðir meyrara kjöt en líka minni rýrnun á pönnunni eða grillinu.

Hamborgararnir eru frosnir og 5 saman í pakka. Alls 2 pk. x 700 g. Samtals 10 stk x 140 g = 1,4 kg.

Kílóverð: 4.250 kr.  Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 595 krónur.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum þér SMS þegar pöntunin er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

33 á lager

Má bjóða þér ost, sósu eða annað?

Verð vöru:5.950 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af nautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru bændur í Reykjahlíð. Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm:
Orka: 834 kJ, 199 kcal.
Próten: 19,0 g
Fita: 13,8 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,6 g og ómettaðar 6,4
Kólestról: 63 mg
Kolvetni: 0
Vatn: 65,8 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Uxakjöt – Hamborgarar (20-25% fituinnihald)
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ribeye

1.310 g, 1.322 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Brisketborgarar (20-25%) frá Reykjahlíð – 10 stk.”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…