Skip to content Skip to footer

Ferskt entrecote frá Gerðum

Price range: 2.404 kr. through 4.924 kr.

Entrecotesteikur frá Gerðum. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir kjötið meyrara fyrir vikið. Entrecote er einn fínasti bitinn af nautinu. Meyr og einstaklega bragðgóður.

Kælivara. Best fyrir 28. apríl.

Kílóverð er 8.290 krónur.  Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:2.404 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.


Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af kvígum frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Entrecote, tvær sneiðar.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Entrecote, þyngdir

290 g, 366 g, 370 g, 382 g, 408 g, 420 g, 426 g, 426 g, 430 g, 532 g, 532 g, 538 g, 542 g, 542 g, 594 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskt entrecote frá Gerðum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…