Deila þessari síðu
Matland er vefverslun með upprunamerkt matvæli og ýmsan varning sem tengist mat og eldamennsku. Við bjóðum meðal annars upp á ferskt og frosið kjöt, grænmetiskassa, krydd, olíur og fiskmeti. Langmest af vörunum eru íslenskar nema þær sem ekki eru framleiddar hérlendis.
Viðskiptavinir sjá allt vöruúrvalið á Matlandsvefnum. Þar er hægt að velja sínar vörur, panta og borga fyrir á greiðslusíðu. Nákvæmar sölulýsingar segja til um eðli vörunnar, framleiðendur og hvernig varan er afhent. Þegar búið er að velja og greiða fyrir vöruna þá komum við henni fyrir í sjálfsafgreiðslu, keyrum heim eða sendum með Samskipum út fyrir borgarmörkin þegar það á við. Viðskiptavinir velja afhendingarmáta þegar varan er pöntuð.
Opnunartímar og afgreiðsla
Sjálfsafgreiðslan á Hrísateig 47 er opin á milli kl. 8.00 á morgnana og til kl. 23.00 á kvöldin. Viðskiptavinir fá sendan aðgangskóða í SMS-i um leið og hægt er að sækja vöruna. Kóðinn gildir í tvo sólarhringa og gengur að talnalás sem er við hliðina á innganginum á Hrísateig. Vörurnar eru staðsettar í kælum, frysti eða í þurrvöruhillu. Pokar og kassar eru merktir kaupendum. Í skilaboðunum sést hvar pokar/kassar eru staðsettir í rýminu. Athugið að sumar vörur eru í kælum og aðrar í frysti þannig að pokarnir geta verið fleiri en einn.
Það er alltaf opið á vefnum okkar og pantanir eru að jafnaði afgreiddar samdægurs í sjálfsafgreiðslu ef þær eru gerðar fyrir hádegi, annars næsta virka dag nema þegar annað er tekið fram í sölulýsingu. Athugið að grænmetiskassar fara í dreifingu á fimmtudögum (nema á rauðum dögum, þá er þeim hnikað til).
Ef viðskiptavinir vilja koma til okkar þá erum við á staðnum á Hrísateig 47 á fimmtudögum á milli klukkan 09.00 til 17.30 og velkomið að versla við okkur þá. Á öðrum tímum eru óformlegir opnunartímar en við afgreiðum alltaf viðskiptavini sem hitta á okkur í búðinni þegar við erum á staðnum.
Verið velkomin að kaupa í matinn hjá Matlandi!

