Lýsing
Fyrsta flokks kjöt af Angus-holdablendingsnautum frá Gunnbjarnarholti. Íslenskt beikon frá Pylsumeistaranum með grísakjöti frá Stjörnugrís.
Hægeldað „Beef bourguignon“, 1,5 kg og 800 g af kartöflustöppu. Verð: 13.490 kr. Fullelduð vara.
Innihald: Nautagúllas frá Gunnbjarnarholti, beikon frá Pylsumeistaranum, hollenskar gulrætur, laukur, rauðvín (Pinot noir), nautasoð frá HD-grill, nautatólg frá Hvammi, tómatpurré, hvítlaukur, timían og rósmarín frá Ártanga, lárviðarlauf, perlulaukur, sveppir frá Flúðasveppum, smjör, hveiti, salt, pipar.
Bændurnir
Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir voru kornung þegar þau hófu búskap árið 1988 með um 20 kýr. Á jörð þeirra hefur verið stundaður kúabúskapur síðan 1789 af sömu fjölskyldu, forfeðrum Arnars í sjö ættliði. Uppbyggingin hefur verið mikil og nú áratugum síðar hafa þau ásamt fjölskyldu sinni byggt yfir um 500 gripi í Gunnbjarnarholti, þar af um 230 mjólkandi kýr í einu fullkomnasta fjósi landsins. Fyrir nokkru hófu þau markaðssetningu á mjólkurvörum frá Gunnbjarnarholti undir heitinu Hreppamjólk en Margrét dóttir þeirra fer fyrir þeim hluta starfseminnar á búinu.
Fjósið í Gunnbjarnarholti er engin smásmíði. /Myndir úr einkasafni.
Velferð kúnna er í fyrirrúmi í fjósinu í Gunnbjarnarholti og þess gætt að kýrnar njóti besta atlætis og aðbúnaðar sem völ er á. Í hluta byggingarinnar er mjólkurbú þar sem m.a. er framleidd neyslumjólk, skyrdrykkir, jógúrt og rjómi. Við veginn neðan við fjósið er lítil verslun með sjálfsölum þar sem hægt er að kaupa mjólkurvörur frá búinu, s.s. Hreppamjólk, skyrdrykki og ís. Kjötið frá Gunnbjarnarholti, sem fæst á Matlandi, er af holdablendingum í lítilli hjörð sem bændurnir hafa ræktað síðustu ár.
Hjalti Egilsson kartöflubóndi á Seljavöllum útvegar kartöflurnar í stöppuna.
Félagarnir Halldór, sem er matreiðslumaður, og Davíð, kjötiðnaðarmaður, hjá HD-grill ehf. Þeir elda tilbúna kjötrétti fyrir Matland.
Aðrar upplýsingar
Innihald: Kjöt af Angus-holdablendingsnautum, beikon, grænmeti, rauðvín o.fl. Fulleldaður réttur. + kartöflustappa
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Gunnbjarnarholti
Vinnsla og skurður: Villt og alið ehf.
Framleiðandi: HD-grill ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.