Skip to content Skip to footer

Fersk klúbbsteik af Angus frá Gerðum

Price range: 4.500 kr. through 4.922 kr.

Klúbbsteikur (nautahryggur) af Angus-holdakvígum frá Gerðum. 50 mm þykk steik. Klúbbsteikin er í raun hálf T-beinssteik, þ.e. búið er að taka lundarhlutann í burtu og saga beinið (sem verður því L-laga). Beinið gefur bragð en eftir eldun má bera steikina fram með beininu eða skera kjötið frá. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir kjötið meyrara fyrir vikið.

Kælivara. Best fyrir 29. apríl.

Kílóverð er 8.790 krónur.  Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:4.500 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.


Fallegir Angus holdagripir úti á túni. Aberdeen Angus eru rómaðir fyrir gott skap og þægilegri í umgengni en ýmis önnur nautgripakyn. Myndir / Bændur í Gerðum


Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af kvígum, Angus-holdagripum, frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Klúbbsteik af Angus frá Gerðum.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Klúbbsteik, þyngdir

512 g, 520 g, 526 g, 534 g, 552 g, 556 g, 560 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fersk klúbbsteik af Angus frá Gerðum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…