Skip to content Skip to footer

Fersk Porterhousesteik frá Reykjahlíð

Price range: 6.437 kr. through 11.112 kr.

Porterhousesteik af uxum frá Reykjahlíð á Skeiðum. Meyrt og safaríkt kjöt sem fékk að hanga í 14 daga. 50 mm þykkar steikur sem njóta sín best á grillinu.

Kílóverð: 8.990 kr.

Kælivara. Best fyrir 27. feb. Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:6.437 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:76482

Lýsing

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af nautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru bændur í Reykjahlíð. Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af nautahryggvöðva:
Orka: 739 kJ, 177 kcal.
Prótein: 21,5 g
Fita: 10,1 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4,2 g og ómettaðar 4,8
Kolvetni: 0
Vatn: 67,7 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Ungnaut (UN). Uxakjöt – Porterhousesteik.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Porterhouse, þyngdir

716 g, 880 g, 894 g, 918 g, 1042 g, 1042 g, 1096 g, 1236 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fersk Porterhousesteik frá Reykjahlíð”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…