Ferskar mínútusteikur af ungnautum frá Reykjahlíð

Price range: 2.384 kr. through 3.594 kr.

Mínútusteikur af uxum frá Reykjahlíð á Skeiðum. Meyrt og safaríkt kjöt sem fékk að hanga í 14 daga. 3-4 steikur í pakka sem fljótlegt er að steikja á pönnu.

Kílóverð: 5.990 kr.

Kælivara. Best fyrir 11. okt. Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á afgreiðslustöðvar Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 2.384 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af ungnautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru bændur í Reykjahlíð. Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm:
Orka: 834 kJ, 199 kcal.
Próten: 19,0 g
Fita: 13,8 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,6 g og ómettaðar 6,4
Kólestról: 63 mg
Kolvetni: 0
Vatn: 65,8 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Ungnaut (UN). Uxakjöt – mínútusteikur
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Mínútusteikur, þyngdir

398 g, 508 g, 518 g, 522 g, 526 g, 540 g, 548 g, 552 g, 560 g, 564 g, 564 g, 582 g, 586 g, 596 g, 600 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskar mínútusteikur af ungnautum frá Reykjahlíð”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard