Skip to content Skip to footer

Ferskt nautafille frá Gerðum

Price range: 2.769 kr. through 3.946 kr.

Nautafille frá Gerðum. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir kjötið meyrara fyrir vikið. Fille úr hryggvöðva – undurljúft á grillið eða pönnuna.

Kælivara. Best fyrir 30. apríl.

Kílóverð er 8.290 krónur.  Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:2.769 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.


Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af nautgripum frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Fille frá Gerðum.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Fille, þyngdir

334 g, 352 g, 354 g, 404 g, 430 g, 476 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskt nautafille frá Gerðum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…