Skip to content Skip to footer

Osso bucco frá Hvammi

4.026 kr.4.517 kr.

Osso bucco af fyrsta kálfs holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. Skrokkurinn fékk að hanga í 14 daga fyrir vinnslu sem tryggir góða meyrni. Osso bucco er best að hægelda vel og lengi.

Þú velur á stærð það sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Að jafnaði eru tvær sneiðar í pakkningunni.  Kílóverð: 3.190 kr.

Kjötið er frosið og fullmeyrnað. Takmarkað magn.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , Vörunúmer:34777

Lýsing

Fyrsta flokks kjöt af holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. Þyngdin á skrokknum var 228 kg.

Osso bucco, niðursagaðir skankar. Kílóverð: 3.190 kr.

Frystivara.

Upplýsingar

Kjötið frá Hvammi er unnið og pakkað af landsliði kjötiðnaðarmanna.

Innihald: Ungnautakjöt (fyrsta kálfs holdablendingskvíga), osso bucco.

Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Matfélagið, Hvammur og Landslið kjötiðnaðarmanna.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is, Hrísateig 47, 105 Reykjavík.

Bændurnir

Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen er kjötiðnaðarmaður að mennt og sér um nautaeldið. Davíð er í landsliðshópi kjötiðnaðarmanna.

Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.

Davíð hefur þróað nautaeldið í Hvammi.


Ungnautin í Hvammi í Ölfusi fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Myndir / TB

Frekari upplýsingar

Osso bucco

1262 g, 1358 g, 1416 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Osso bucco frá Hvammi”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard