Skip to content Skip to footer

Fiskibollur frá Sjávarbúrinu – 1,5 kg – frystar

3.645 kr.

1,5 kg af fiskibollunum frá Sjávarbúrinu, lausfrystar í einum poka. Fiskibollur eru alltaf vinsælar, sérstaklega með góðum kartöflum og lauksmjöri. Lykillinn að góðum fiskibollum Sjávarbúrsins er úrvalshráefni og hátt hlutfall fisks í bollunum (87% þorskur og ýsa). Þær eru glúten, mjólkur- og eggjalausar. Bollurnar eru fullsteiktar og frystar.

Bollurnar eru steiktar og það eina sem þú þarft að gera, eftir að bollurnar þiðna, er að hita þær í ofni í 10-12 mínútur við 160-180°C. Einfaldari gerist matargerðin ekki.

Bollurnar eru afhentar í lofttæmdum umbúðum, 1.500 g. Það eru um 20-22 bollur í pokanum. Kg-verð 2.430 kr. Pokinn kostar 3.645 kr.

Það fer nærri að áætla 4-5 bollur á hvern fullorðinn einstakling í máltíð.

Við sendum fiskmetið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

17 á lager

Flokkar: , Merkimiðar: , Vörunúmer:46715

Lýsing

Eldunarleiðbeiningar

Þýðið bollurnar í ísskáp. Bollurnar eru fulleldaðar. Hitið í ofni við 160-180°C í 10-12 mínútur þangað til bollurnar eru heitar í gegn. Það er líka í góðu lagi að skella bollunum á pönnu ásamt lauksmjöri og steikja þar til þær eru orðnar heitar. Í örbylgjuofni er hitunartíminn á bilinu 3-4 mínútur en fer eftir styrk.

Lauksmjör

Lauksmjör er klassískt meðlæti með fiskibollum, hvort sem þær eru heimagerðar eða keyptar.

3-4 laukar
100 g smjör

Flysjaðu laukinn og saxaðu hann frekar gróft eða skerðu hann í tvennt og helmingana síðan í sneiðar. Bræddu smjörið við vægan hita í potti eða á djúpri pönnu, settu laukinn út í og láttu krauma rólega þar til laukurinn er orðinn mjög mjúkur – það gæti tekið 10-15 mínútur og þess vegna er best að byrja á þessu áður en bollurnar eru settar á pönnuna. Laukurinn má gulna dálítið en alls ekki brúnast eða brenna. Hrærðu í honum öðru hverju. Heimild / Nanna Rögnvaldardóttir

Sumir bræða meira af smjöri og þeyta örlítið af volgu vatni þið það með písk. Við það verður feitin þynnri og ögn froðukenndari.

Varan

Fiskibollur Sjávarbúrsins
Glúten-, mjólkur-, hnetu, soyja og eggjalausar.
Ofnæmis- og óþolsvaldar: Ýsa, þorskur, sinnepsfræ

Næringargildi í 100 g
Orka 376 kJ / 89 kkal
Fita 0,6 g
– þar af mettuð fita 0,11 g
Kolvetni 4,7 g
– þar af sykurtegundir 0,27 g
Trefjar 0,34 g
Prótein 15,9 g
Salt 0,97 g

Steikt upp úr repjuolíu.

Innihald:
Ýsa og þorskur (87%)
Laukur
Kartöflumjöl
Maísmjöl
Karrý
Krydd (kóríander, paprika, turmeric, cumin, engifer, kanilduft, SINNEPSFRÆ, laukduft)
Salt
Hvítur pipar

Ofnæmis- og óþolsvaldar: Ýsa, þorskur, sinnepsfræ

Frystivara -18°C

Upprunaland: Ísland
Framleiðsla og pökkun: Sjávarbúrið, Hvaleyrarbraut 2, 220 Hafnarfjörður. Netfang: sjavarburid@sjavarburid.is
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður: Matland á Hrísateig 47 í Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Þyngd

500 g (7-8 bollur), 1000 g (14-15 bollur), 1500 g (21-23 bollur), 2000 g (28-30 bollur)

Þér gæti einnig líkað við…