Skip to content Skip to footer

Grísakjöt í kassa frá Litla búgarðinum

Price range: 55.066 kr. through 56.794 kr.

Matland býður upp á grísakjöt í kassa frá Litla búgarðinum á Hlemmiskeiði. Kjöt af grísum sem fá að valsa um úti undir berum himni í beitarhólfi þar sem þeir bíta gras og fá að auki íslenskt kornfóður. Kjötið er aðeins dekkra en hefðbundið grísakjöt og mörgum þykir það bragðmeira. Kjötið er unnið af kjötmeisturum Villt & alið á Hellu og pakkað í loftþéttar umbúðir. Beikonið er reykt og unnið hjá Korngrís í Laxárdal.

Einstakt tækifæri til að kaupa kjöt af grísum sem eru aldir með öðrum hætti en gengur og gerist nú til dags. Frystivara (nema beikon sem er kælivara). Takmarkað magn.

Innihald:
– 1 stk. lund (á bilinu 470-560 g)
– 5 pk. hakk (5 x 500 g)
– 2 pk gúllas (2 x 500 g)
– 2 pk snitsel (samtals um 1000 g)
– 1 heilt rif, (á bilinu 870-1190 g)
– 1/2 hringskorinn bógur (á bilinu 1800-2400 g)
– 2 pk. kótelettur m. beini (á bilinu 800-930 g í pakka)
– 1 pk grísahnakkasneiðar, um 600 g
– 1 pk innralæri, ofnsteik, um 600 g
– 1 pk. grísahnakki, ofnsteik sem hentar í “pulled pork”, (á bilinu 1000 – 1300 g)
– 1 fille (á bilinu 1100-1300 g)
– 2 pk beikon (samtals um 650-700 g)

Þú velur þinn kassa með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kassarnir eru á bilinu 14,2 til 14,8 kg. Kílóverð er 3.840 krónur.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík, daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:64332

Lýsing

Grísakjöt í kassa af lausagöngugrísum á Hlemmiskeiði.
Frystivara (nema beikon sem er kælivara)

Litli búgarðurinn á Hlemmiskeiði

Bændurnir Ævar Austfjörð og Ása Sif Tryggvadóttir búa á smábýlinu Hlemmiskeiði 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þau kalla búskapinn sinn „Litla búgarðinn“ en þar er megináhersla lögð á dýravelferð og umhverfisvænar aðferðir í stóru sem smáu. Ævar og Ása ala m.a. grísi sem eru frjálsir innan stórs beitarhólfs. Þar éta þeir gras og er líka gefið íslenskt fóður sem ræktað er í nágrenninu.

Ævar og Ása fluttu í sveitina árið 2021 og byrjuðu á því að fá til sín nokkra nautkálfa. Síðan vatt búskapurinn upp á sig og nú eru þau með hænur og frjálsa grísi í eldi. Þau beita nokkuð óvenjulegum aðferðum í búskapnum sem þau kalla „auðgandi landbúnað“ (e. Regenerative agriculture).

Ævar útskýrir í hverju aðferðirnar felast: „Þessar aðferðir snúast um að nota sem minnst og helst ekkert af tilbúnum áburði og einnig sem minnst af vélbúnaði til landvinnslu. Í staðinn notum við skepnurnar til að örva gróðurvöxt með ágangi eins og t.d. traðki nautgripa og einnig traðki og róti svína og kjúklinga. Við höfum skepnurnar í hólfum afmörkuð með rafmagnsgirðingum og færum gripina reglulega til að stýra hvað mikið er étið og hversu mikill ágangurinn verður. Tilgangurinn með áganginum og beitarstýringunni ásamt því að plægja ekki er m.a. að dýpka rótarkerfi plantna og hyggja upp næringarríkan jarðveg og auka þannig lífrænt efni í honum,“ segir Ævar.

„Grísirnir okkar fá íslenskt fóður ræktað af nágrönnum okkar ásamt því að þeir éta mikið af grasi rótum og öðru góðgæti sem þeir finna í jarðveginum. Þeir bera svo á fyrir okkur með sínum úrgangi og bæta þannig landgæði þess svæðis sem þeir fari yfir á hverju ári. Kjötið af þeim er bragðmikið og bragðgott og oft örlítið dekkra en fólk á að venjast af grísakjöti,” segir Ævar Austfjörð.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu grísakjöti:
Orka: 968 kJ, 231 kcal.
Prótein: 19,5 g
Fita: 17,2 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 6,9 g og ómettaðar 6,1 g
Kólestról: 69 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Litla búgarðinum á Hlemmiskeiði 1 er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Grísakjöt í kassa
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Hlemmiskeiði 1.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Þyngd á kassa

14,2 kg, 14,3 kg, 14,3 kg, 14,3 kg, 14,6 kg, 14,6 kg, 14,6 kg, 14,8 kg

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Grísakjöt í kassa frá Litla búgarðinum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard