Kofareykt bleikja frá Svartárkoti – 4 flök

(1 umsögn viðskiptavinar)

Price range: 7.734 kr. through 8.893 kr.

Kofareykt lítil bleikjuflök frá Svartárkoti fæst nú hjá Matlandi. Fjögur flök af reyktri bleikju sem þú geymir í frysti og tekur fram þegar þér hentar.

Hálendishnossgæti sem reykt er við sauðatað á gamla mátann í ekta reykkofa, 400 metra yfir sjávarmáli. Flökin hanga í um 3 sólarhringa í reyknum, mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni. Þær eru meðal annars metnar eftir hita, vindi og veðrum. Bragðið ræður svo auðvitað hvenær varan er tilbúin að mati bændanna. Bleikjan í litlu flökunum, sem reykt er í Svartárkoti, kemur frá Haukamýri.

Kílóverð er 7.990 krónur.  Veldu þá þyngd sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , , Vörunúmer:77706

Lýsing

Bændurnir


Svartárkot í Bárðardal í vetrarbúningi. Myndir / Svartárkot

Guðrún og Hlini, bændur í Svartárkoti, með silungssendingu í Matlandi. Mynd / TB

Varan

Frystivara.

Innihald: Kofareykt lítil bleikjuflök sem reykt eru í Svartárkoti. 4 pakkar.

Næringargildi í 100 g:

Orka 803 KJ/192 kkal
Fita 12 g
– þarf af mettuð: 1,7 g
Kolvetni: 0,1 g
– þar af sykurteg. 0,1 g
Prótein 21 g
Salt 2 g

Innihald: Lítil bleikjuflök úr eldi í Haukamýri. Salt 3%
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Haukamýri
Bændur: Guðrún Sigríður Tryggvadóttir og Hlini Gíslason
Framleiðandi: Svartárkot.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Bleikjuflök, þyngdir

968 g, 997 g, 998 g, 1002 g, 1016 g, 1018 g, 1031 g, 1035 g, 1051 g, 1113 g

1 umsögn um Kofareykt bleikja frá Svartárkoti – 4 flök

  1. Avatar

    Sigr. Áslaug Guðmundsdóttir (staðfestur eigandi)

    Mæli með bleikjunni frá Svartárkoti, einstaklega bragðgóð. Frábært að eiga í frysti 🥰

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard