Kofareykt Hólableikja frá Svartárkoti – 4-5 bitar

Price range: 7.998 kr. through 8.997 kr.

Kofareykt bleikja frá Svartárkoti. 4 til 5 bitar af bleikju sem ræktuð er á Hólum í Hjaltadal. Þú geymir bitana í frysti og tekur fram þegar þér hentar.

Hálendishnossgæti sem reykt er við sauðatað á gamla mátann í ekta reykkofa, 400 metra yfir sjávarmáli. Flökin hanga í um 3 sólarhringa í reyknum, mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni. Þær eru meðal annars metnar eftir hita, vindi og veðrum. Bragðið ræður svo auðvitað hvenær varan er tilbúin að mati bændanna. Bleikjan kemur frá Hólum í Hjaltadal þar sem hún er alin í landeldiskerjum. Hólableikjan er þónokkuð stærri en önnur bleikja sem bændurnir í Svartárkoti reykja.

Kílóverð er 7.990 krónur.  Veldu þá þyngd sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , , Vörunúmer:85859

Lýsing

Bændurnir


Svartárkot í Bárðardal í vetrarbúningi. Myndir / Svartárkot

Guðrún og Hlini, bændur í Svartárkoti, með silungssendingu í Matlandi. Mynd / TB

Varan

Frystivara.

Innihald: Kofareykt bleikja frá Hólum í Hjaltadal sem reykt er í Svartárkoti. 4-5 pakkar.

Næringargildi í 100 g:

Orka 803 KJ/192 kkal
Fita 12 g
– þarf af mettuð: 1,7 g
Kolvetni: 0,1 g
– þar af sykurteg. 0,1 g
Prótein 21 g
Salt 2 g

Innihald: Bitar af bleikju úr eldi í Hólum í Hjaltadal. Salt 3%
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Haukamýri
Bændur: Guðrún Sigríður Tryggvadóttir og Hlini Gíslason
Framleiðandi: Svartárkot.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Bleikjubitar, þyngdir

1001 g, 1015 g, 1025 g, 1041 g, 1049 g, 1072 g, 1086 g, 1095 g, 1115 g, 1126 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kofareykt Hólableikja frá Svartárkoti – 4-5 bitar”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard