Skip to content Skip to footer

Kofareyktur silungur frá Svartárkoti – 4-6 bitar í poka

(1 umsögn viðskiptavinar)

Price range: 6.560 kr. through 8.390 kr.

Vinsæli kofareykti silungurinn frá Svartárkoti fæst nú hjá Matlandi. Poki með 4-6 bitum af reyktum regnbogasilungi sem þú geymir í frysti og tekur fram þegar þér hentar.

Hálendishnossgæti sem reykt er við sauðatað á gamla mátann í ekta reykkofa, 400 metra yfir sjávarmáli. Flökin hanga í um 3 sólarhringa í reyknum, mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni. Þær eru meðal annars metnar eftir hita, vindi og veðrum. Bragðið ræður svo auðvitað hvenær varan er tilbúin að mati bændanna.  Regnbogasilungurinn, sem reyktur er í Svartárkoti, kemur frá fyrirtækinu Sjávareldi á Vestfjörðum.

Kílóverð er 7.990 krónur.  Veldu þá þyngd sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , , Vörunúmer:75122

Lýsing

Bændurnir


Svartárkot í Bárðardal í vetrarbúningi. Myndir / Svartárkot

Guðrún og Hlini, bændur í Svartárkoti, með silungssendingu í Matlandi. Mynd / TB

Varan

Frystivara.

Innihald: Kofareyktur regnbogasilungur frá Svartárkoti. Um pakkar í hverjum poka.

Næringargildi í 100 g:

Orka 803 KJ/192 kkal
Fita 12 g
– þarf af mettuð: 1,7 g
Kolvetni: 0,1 g
– þar af sykurteg. 0,1 g
Prótein 21 g
Salt 2 g

Innihald: Regnbogasilungur frá Sjávareldi á Vestfjörðum. Salt 3%
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið hjá Sjávareldi á Vestfjörðum
Bændur: Guðrún Sigríður Tryggvadóttir og Hlini Gíslason
Framleiðandi: Svartárkot.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Regnbogasilungur, þyngdir

620 g, 821 g, 839 g, 884 g, 933 g, 956 g, 1050 g

1 umsögn um Kofareyktur silungur frá Svartárkoti – 4-6 bitar í poka

  1. Avatar

    Sigr.Áslaug Guðmundsdóttir (staðfestur eigandi)

    Mæli með 👍 Gott að eiga í frysti.

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…