Lambahryggur frá Engihlíð í Vopnafirði

Price range: 16.282 kr. through 24.511 kr.

Lambahryggur frá Engihlíð í Vopnafirði. Kjöt af vænum lömbum sem fengu að hanga í 2 sólarhringa eftir slátrun í handverkssláturhúsinu á Refsstað. Kílóverð 6.360 kr.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Afgreiðum samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Líka hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Veldu hér undir þá þyngd sem þú óskar eftir.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:71135

Lýsing

Bændurnir

Í Engihlíð búa Gauti Halldórsson og Halldóra Andrésdóttir með fjölbreyttan búskap. Þau taka þátt í verkefninu “Loftslagsvænn landbúnaður” og hafa í tengslum við það endurheimt votlendi á 90 hektara svæði, grætt upp land og plantað um 10 þúsund trjám árlega á jörðinni. Í næsta nágrenni er sláturhúsið á Refsstað, einungis 600 metra frá bænum. Það þýðir að ekki þarf að aka með lömbin til slátrunar nema í nokkrar mínútur.

Engihlíð er nýbýli út úr jörðinni Svínabökkum, stofnað seint á sjötta áratug síðustu aldar af foreldrum núverandi ábúenda. Aðalbúgrein er mjólkurframleiðsla, um 400.000 lítrar á ári auk framleiðslu nautakjöts og dilkakjöts. Þá er lítilsháttar æðarvarp og einnig er stofnræktun á íslensku landnámshænunni, svokölluðum Andrésarstofni. Minkarækt var stór hluti rekstursins frá 1984-2017 en þá var henni hætt í kjölfar mikillar verðlækkunar á skinnum. Nytjaskógrækt hófst 2013 á 199 hekturum lands í Vatnsdalsgerði en sú jörð var keypt með allri áhöfn og framleiðslurétti árið 2005. Beitarskógur er í Engihlíð á 18 hekturum lands. (Heimild: Loftslagsvænn landbúnaður)

Varan

Frystivara.

Næringargildi í 100 g:
Orka 1520 kj / 364 kkal
Fita 34,5 g
Kolvetni 4,8 g
Prótein: 14,5 g

Innihald: Lambakjöt. Lambahryggur. Haustslátrun 2026.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Engihlíð í Vopnafirði
Framleiðandi: Engihlíð
Sláturhús: Sláturhúsið á Refsstað í Vopnafirði
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Lambahryggur, þyngdir

2560 g, 2726 g, 2736 g, 2820 g, 2836 g, 2860 g, 2908 g, 2930 g, 2970 g, 2980 g, 3096 g, 3122 g, 3210 g, 3210 g, 3854 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Lambahryggur frá Engihlíð í Vopnafirði”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard