Skip to content Skip to footer

Lífrænt kálfafillet

2.423 kr.2.476 kr.

Lund af mjólkurkálfi frá lífræna búinu á Neðra-Hálsi í Kjós. Kálfakjöt er ljósara en kjöt af fullorðnum gripum. Milt og ljúft bragð.

Kg-verð 8.780 kr. Frystivara.

Framleiðandi er Biobú. Gripunum er slátrað í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey sem er eina lífrænt vottaða stórgripasláturhús landsins um þessar mundir.

Viðskiptavinir geta valið um að fá kjötið sent heim til sín gegn vægu gjaldi eða sótt á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir SMS þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendum um allt land með Samskipum.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:59893

Lýsing

Bændurnir á Neðra-Hálsi í Kjós eru þau Dora Ruf og Kristján Oddsson. Þau hlutu landbúnaðarverðlaunin fyrir sinn búskap á Búnaðarþingi 2022. Dora og Kristján eru sannkallaðir frumkvöðlar í lífrænni ræktun á Íslandi. Mynd / TB

Lífrænt kálfafillet. Kg-verð er 8.780 kr.

Kjötið er frosið.

Næringargildi í 100 g:

Orka 711 KJ/170 kkal
Fita 13,8 g
– þarf af mettuð: 5,6 g
Kolvetni: 0 g
– þar af sykurteg. 0 g
Prótein 19 g
Salt 0 g

Innihald: Kálfakjöt – fillet
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Neðra-Hálsi í Kjós.
Framleiðandi: Biobu ehf. í Reykjavík
Sláturhús nr. A997 – Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

 

Frekari upplýsingar

Kálfafillet

276 g, 282 g

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard