Skip to content Skip to footer

Pottsteik (e. pot roast) frá Gerðum

Price range: 3.835 kr. through 4.798 kr.

Pottsteik af nautgripum frá Gerðum. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir kjötið meyrara fyrir vikið. Best að hægelda í ofni. Munið að láta hvíla eftir eldun áður en skorið er.

Kælivara.

Kílóverð er 6.590 krónur.  Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:3.835 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , Vörunúmer:81271

Lýsing

Bændurnir

Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.


Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður. 

Eldunarleiðbeiningar

Takið kjötið út úr kæli a.m.k. 30- 45 mínútur áður en eldun hefst. Byrjaðu á því að þerra bitann og pipra og salta. Önnur krydd eftir smekk, s.s. rósmarín eða timian. Hvítlaukur alltaf góður.

Því næst er bitinn settur á snarpheita pönnu og steiktur á öllum hliðum þar til brúnaður (1-2 mínútur á hverri hlið).

Sitt sýnist hverjum um ofnhita og lengd eldunar. Við mælum með hægri eldun við 120°C. Gefið ykkur góðan tíma í verkið, a.m.k. 4 klst., eða þar til kjötið er orðið algjörlega mjúkt. Hafið örlítið af vatni í fatinu og lok á. Passið upp á safann og ausið reglulega soði yfir bitann.

Látið kjötið hvíla í 10-15 mínútur með álpappir ofan á og viskustykki áður en skorið er í sneiðar.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af kvígum frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Pottsteik í heilum bita.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Pottsteik, þyngdir

582 g, 648 g, 704 g, 728 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Pottsteik (e. pot roast) frá Gerðum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…