Deila þessari síðu
Malbec-þrúgan á rætur sínar að rekja til suðvesturhluta Frakklands, nánar tiltekið til Cahors. Þar ber þrúgan líka nafnið Côt, en einnig á hún sér ríka sögu í Bordeaux. Malbec hefur aldrei þótt neitt sérstaklega merkileg þrúga í Bordeaux, aðallega sökum þess hvað hún þoldi illa loftslagið og pestirnar sem þar voru að finna. Malbec hefur því aðallega verið notuð sem uppfyllingarefni í vín sem þurfti aðeins meiri fyllingu. Í Cahors fær hún hins vegar að vera í aðalhlutverki, þar sem að hinn kalkkenndi jarðvegur hentar henni mun betur. Þar eru framleidd þétt og tannísk vín, sem þola oft góða geymslu. Í dag eru þó langflestir sem tengja þessa þrúgu við Argentínu, sem er svo sem vel skiljanlegt, þar sem að um það bil 75% af Malbec-framleiðslu heimsins er ræktuð þar og hefur þrúgan skipað sér sess sem þjóðarþrúga Argentínu á síðustu árum.
Upphafið
Þó svo að vínrækt í Argentínu hafi hafist fljótlega eftir að Evrópubúar uppgötvuðu Suður-Ameríku og fóru að byggja landið, var það ekki fyrr en um miðja nítjándu öld sem að framleiðslan tók alvöru kipp. Argentínumenn voru að feta sig áfram í framleiðslu vína og vildu láta taka sig alvarlega. Þeir báðu því franskan grasa- og vínviðarfræðing (gefum okkur að það sé sérfræðiheiti!) að nafni Miguel Aimé Pouget um að aðstoða sig. Hann hafði starfað í Chile við góðan orðstír og snéru verkefnin að því að gera tilraunir með að rækta evrópskar þrúgutegundir á borð við Cabernet sauvignon, Merlot, Carmenère og Malbec þar í landi og skrásetja hvernig þær aðlöguðust umhverfinu. Hann var beðinn um að gera slíkt hið sama í Argentínu og tók með sér nokkrar af þeim þrúgutegundum sem hann hafði verið að gera tilraunir með hinum megin við Andesfjöllin. Þó svo að flestar tegundirnar hafi plumað sig vel, þá er það Malbec sem á endanum aðlagaðist einna best. Hún er í dag mest ræktaða þrúgutegundin þar í landi og ber titilinn „flaggskip“ Argentínu þegar talað er um vín.
Af hverju þrífst Malbec svona vel í Argentínu?
Það má með nokkru öryggi segja að Argentína sé afar fjölbreytt land þegar kemur að loftslagi og jarðvegi. Þó svo að Malbec sé ræktuð í nánast öllum vínræktarhéruðum landsins þrífst hún hvergi betur en í Mendoza, sem er nokkurn veginn fyrir miðju landsins. Þar eru aðstæður nánast fullkomnar fyrir þrúguna, en það sem héraðið hefur umfram önnur svæði er nálægðin við Andesfjöllin. Hér er þrúgan ræktuð í allt að 1.000 m hæð yfir sjávarmáli og til að setja það í samhengi, sem við ættum flest að tengja við, þá nær gangan upp að Steini á Esjunni í um 500 m hæð yfir sjávarmál. Í þessum hæðum er loftslagið mun svalara sem gerir Malbec þrúgunni kleift að þroskast lengur. Þannig nær hún að viðhalda ferskleikanum betur meðan hún nær kjörþroska. Þetta gerir það að verkum að vínin eru afskaplega ávaxtarík, en á sama tíma með góðan ferskleika til þess að þau verði ekki þunglamaleg og sæt.
Hvernig bragðast Malbec frá Argentínu?
Þó svo að Malbec vín frá Argentínu geti verið jafn fjölbreytt og loftslagið eða jarðvegurinn, þá má oft búast við bragðmiklum og ávaxtaríkum vínum með dökkum ávexti í aðalhlutverki, krydd í aukahlutverki og frekar mild tannín. Kannski er best að lýsa þessu eins og Laura Catena hjá Catena víngerðinni gerir – „Vín úr Malbec frá Argentínu eru svolítið eins og fólkið í Argentínu, vingjarnlegt, opið og sterkir karakterar“.