Skip to content Skip to footer

Fersk klúbbsteik frá Reykjahlíð

Price range: 3.885 kr. through 4.536 kr.

Klúbbsteik af uxum frá Reykjahlíð á Skeiðum. Meyrt og safaríkt kjöt sem fékk að hanga í 14 daga. Klúbbsteikin er í raun hálf T-beinssteik, þ.e. búið er að taka lundarhlutann í burtu og saga beinið (sem verður því L-laga). Beinið gefur bragð en eftir eldun má bera steikina fram með beininu eða skera kjötið frá.

Hvaðan er nafnið „klúbbsteik“ komið? Ein kenningin er að einkaklúbbar og fínni veitingastaðir í Bandaríkjunum hafi boðið upp á steikina og þaðan sé nafngiftin. Stærðin á steikinni hentar vel á vænan disk fyrir einn fullorðinn. Þrátt fyrir að nákvæmur uppruni nafnsins sé óljós, vísar „club steak“ almennt til ribeye- eða strip-steikar með beini. Báðar eru þekktar fyrir mýkt og ríkt bragð.

Lagleg steik sem virkilega gaman er að elda og enn betra að snæða. Upplögð á grillið eða pönnuna. Klúbbsteikin er 50 mm þykk. Við mælum með að elda “medium rare” og muna að láta kjötið hvíla í nokkrar mínútur eftir eldun.

Kílóverð: 8.790 kr.

Kælivara. Best fyrir 4. mars. Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:3.885 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:76416

Lýsing

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af nautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru bændur í Reykjahlíð. Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af nautahryggvöðva:
Orka: 739 kJ, 177 kcal.
Prótein: 21,5 g
Fita: 10,1 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4,2 g og ómettaðar 4,8
Kolvetni: 0
Vatn: 67,7 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Ungnaut (UN). Uxakjöt – hryggvöðvi, klúbbsteik
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Klúbbsteik, þyngdir

442 g, 454 g, 464 g, 464 g, 486 g, 490 g, 492 g, 494 g, 498 g, 502 g, 502 g, 506 g, 512 g, 516 g, 524 g, 526 g, 526 g, 528 g, 536 g, 548 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fersk klúbbsteik frá Reykjahlíð”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…