Skip to content Skip to footer

Fersk pichanasteik frá Reykjahlíð

Price range: 1.389 kr. through 3.453 kr.

Pichanasteik af uxum frá Reykjahlíð á Skeiðum. Meyrt og safaríkt kjöt sem fékk að hanga í 14 daga.

Kílóverð: 6.490 kr.

Kælivara. Best fyrir 3. mars. Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:1.389 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:76634

Lýsing

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af nautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru bændur í Reykjahlíð. Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm:
Orka: 834 kJ, 199 kcal.
Próten: 19,0 g
Fita: 13,8 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,6 g og ómettaðar 6,4
Kólestról: 63 mg
Kolvetni: 0
Vatn: 65,8 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Ungnaut (UN). Uxakjöt – pichanasteik
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Pichana, þyngd

214 g, 238 g, 254 g, 260 g, 264 g, 300 g, 342 g, 352 g, 378 g, 412 g, 450 g, 470 g, 474 g, 504 g, 532 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fersk pichanasteik frá Reykjahlíð”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…