Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Sigurður Haraldsson, kjötiðnaðarmeistari, var á dögunum útnefndur „Kjötmeistari Íslands“ þegar Meistarafélag kjötiðnaðarmanna hélt fagkeppni sína í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Sigurður rekur Pylsumeistarann við Hrísateig en hann er hvað þekktastur fyrir pylsur og álegg þar sem áherslan er lögð á fyrsta flokks hráefni og ekki eru notuð óþörf íblöndunarefni. Sigurður vann fagkeppnina í ár…
Árgjald upprunamerkis á bilinu 100 þúsund til 2,5 milljónir króna
„Íslenskt staðfest“, upprunamerki íslenskra matvara, plantna og blóma, var kynnt um miðbik mars. Tilgangur þess er að auka sýnileika og markaðshlutdeild íslenskra afurða og gefa neytendum greinilegar upplýsingar um að viðkomandi vara sé framleidd á Íslandi. Merkinu er ætlað að einfalda val neytenda við að velja íslenskar vörur. Bændasamtök Íslands eiga og reka merkið en…
Framleiða sterkar sósur úr íslenskum chilipipar
Í Hveragerði eru framleiddar hágæða heitar sósur undir vörumerkinu „Eldtungur“. Sósurnar eru afsprengi og hugarfóstur hjónanna Laufeyjar Sifjar Lárusdóttur og Elvars Þrastarsonar sem eiga og reka brugghúsið og pítsustaðinn Ölverk. Þau fengu nýlega 800 þúsund króna styrk frá Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi til þess að fara í markaðssókn með Eldtungurnar sem sverja sig í ætt…
Framleiðslu á ÍSEY-skyri í Rússlandi verður hætt
Ísey útflutningur ehf. hefur rift leyfissamningi við rússneska félagið IcePro um framleiðslu og dreifingu á skyri undir merkjum ISEY-skyr fyrir Rússlandsmarkað. Ísey útflutningur ehf. hefur haft leyfissamninginn til skoðunar undanfarnar vikur vegna stríðsreksturs Rússlands í Úkraínu. Ísey útflutningur ehf. annast kaup og sölu mjólkurafurða á erlendri grund og gerð leyfissamninga fyrir framleiðslu á skyri.  „Samningnum…
Sterk leið til að kynna íslenskan fisk
  Íslandsstofa hefur um árabil unnið að samstarfsverkefnum við saltfiskkaupendur úti í heimi. Björgvin Þór Björgvinsson, starfsmaður Íslandsstofu, tók meðfylgjandi myndir í aprílbyrjun á kokkaskólakeppni í Róm þar sem 6 nemendur frá öllum landshlutum Ítalíu elduðu sínar uppskriftir úr íslenskum saltfiski. „Sigurvegarinn kemur frá kokkaskólanum í Sorrento og eru verðlaunin m.a.…
Ferðaþjónustan fær 550 milljónir frá ríkinu til markaðsstarfs
Í kjölfarið á kórónuveirufaraldrinum settu stjórnvöld fjármuni í verkefni sem hlaut nafnið „Saman í sókn“. Markmiðið var að útbúa markaðsefni fyrir ferðaþjónustuna til að ná viðspyrnu eftir mögur ár vegna faraldursins. Nú hafa yfirvöld framlengt átakið um eitt ár og gert samning við Íslandsstofu um 550 milljónir króna viðbótarframlag til verkefnisins. „Ísland saman í sókn…
Vilja fjölga notendum á grænni orku
Kanna á hagkvæmni þess að reisa grænan auðlindagarð í Reykholti í Biskupstungum. Á svæðinu eru nú þegar sterk garðyrkju- og ferðaþjónustufyrirtæki sem reiða sig á mikið rafmagn og heitt vatn. Þessi fyrirtæki, ásamt Orkídeu og Sveitarfélaginu Bláskógabyggð skrifuðu á dögunum undir viljayfirlýsingu að ráðast greiningarvinnu um fýsileika auðlindagarðs á svæðinu. Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar,…
Lambagúllas með gamla laginu
Lambakjöt nýtur sín sérlega vel í gúllasréttum. Það er svo mjúkt og bragðgott - og klikkar bara alls ekki! Hér er uppskrift að gamla góða gúllasinu í brúnu sósunni. Hráefni 1 kg lambasmásteik, framhryggur eða súpukjöt 2 laukar 4 gulrætur 75 g smjörlíki 4 msk hveiti 0,75 l kjötsoð eða vatn 2 lárviðarlauf 1…
Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard