Nýtt fyrirtæki í matvælaiðnaði, Smjer ehf., hefur sett á markaðinn nýstárlega béarnaise-sósu þar sem notandinn gerir ekki annað en að bræða smjör með öllum innihaldsefnum og bæta við 5-6 þeyttum eggjarauðum. Frumkvöðlarnir segja að margir veigri sér við að búa til ekta klassíska béarnaise-sósu og Smjer-sósan sé svar við því. „Mörgum vex í augum…
Fréttir
Árlega fellur til mikið magn af ærkjöti á Íslandi en það er sjaldan á boðstólum í verslunum nema sem vinnsluvörur eða í takmörkuðu magni. Þeir sem einu sinni hafa smakkað ærkjöt vita að það er bæði meyrt og bragðmikið sé það rétt verkað og af góðum gæðum.Heildarframleiðsla á kindakjöti er um 9.400 tonn…
Fyrirtækið Aldingróður í Vestmannaeyjum er þriggja ára gamalt frumkvöðlafyrirtæki sem ræktar um 20 tegundir af sprettum. Fyrstu ræktuðu sprettubakkarnir sem fyrirtækið framleiddi voru afhentir veitingahúsinu Slippnum í Vestmannaeyjum sumarið 2019. Spretturnar frá Aldingróðri hafa nær eingöngu verið í boði fyrir veitingahús og mötuneyti hingað til og fást ekki í verslunum. Matland býður upp á sinnepssprettur í grænmetiskassa…
Á bænum Efri-Úlfsstöðum í Landeyjum hafa Hörður Bender og fjölskylda hans síðustu ár unnið að ræktun á íslenskum hvítlauk og gulrótum með ágætum árangri. Þau eru sannkallaðir frumkvöðlar en enginn á Íslandi hefur ræktað hvítlauk með það fyrir augum að búa til vöru á markað. Matland býður upp á hvítlauk og gulrætur frá Efri-Úlfsstöðum í…
„Það hefur alltaf verið hálfgert kvennaríki á Glitstöðum“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi. Hún og Eiður Ólason maðurinn hennar reka myndarlegt kúabú sunnanmegin í Norðurárdal. Afi og amma Guðrúnar áttu fimm stelpur og þær máttu hjálpa til í búskapnum eins og þá tíðkaðist.„Það er búin að vera samfelld búseta hjá sömu fjölskyldunni hér á Glitstöðum…
Bændurnir Hjalti Egilsson og Birna Jensdóttir á Seljavöllum í Nesjum í Hornafirði hafa getið sér gott orð fyrir kartöflurækt. Matland kíkti í heimsókn á Seljavelli en þar eru ræktaðar kartöflur á rúmum 8 hekturum lands. Hluti af görðunum er undir ábreiðum svo kartöflurnar vaxi hraðar og komi fyrr á markað. Hornafjörðurinn hefur mikla sérstöðu í…
Í Melasveitinni undir Hafnarfjalli á nýbýlinu Narfaseli rækta svissnesku hjónin Laurent og Lola ýmiskonar grænmeti. Þau eru byrjuð að uppskera og bjóða upp á takmarkað magn í sumar af nokkrum tegundum í einum kassa hjá Matlandi. Úrvalið er breytilegt eftir því hvað er til hverju sinni en innihald hvers kassa verður auglýst með góðum fyrirvara.…
Michelin-guide tilkynnti í dag hvaða Skandinavísku veitingastaðir hljóta hina eftirsóttu nafnbót að bera Michelinstjörnu – eða stjörnur. Stóru fréttirnar fyrir Ísland er að veitingastaðurinn ÓX á Laugavegi er kominn með stjörnu. Það eru þeir Þráinn Freyr Vigfússon og Rúnar Pierre Heriveaux sem eiga heiðurinn af matseldinni á ÓX. Í umsögninni um Óx segir á ensku:…
Ein stærsta vefverslun landsins, Heimkaup, hefur hafið sölu á áfengi. Í fréttatilkynningu frá Heimkaupum segir að viðskiptavinir þurfi að samþykkja kaupin með rafrænum skilríkjum sem sanna áfengiskaupaaldur. Milliliðir í viðskiptunum er danska fyrirtækið Heimkaup ApS en samkvæmt íslenskum lögum má ÁTVR eitt selja áfengi beint til neytenda. Heimkaup fer því svipaða leið og önnur fyrirtæki…
Norrænu Embluverðlaunin voru veitt í Osló í kvöld í þriðja sinn. Íslendingar riðu ekki feitum hesti frá verðlaunaathöfninni og hlutu engin verðlaun þetta árið frekar en í síðustu tvö skipti. Í ár voru það Norðmenn og Danir sem unnu þrenn verðlaun hvert og Svíþjóð hreppti ein verðlaun. Grænlendingar, sem tóku þátt í fyrsta skipti, fengu…

