Deila þessari síðu
Stjórnvöld hafa gefið út aðgerðaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu. Áætlunin var unnin í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en eitt af áhersluverkefnum sem þar eru tilgreind er mótun áætlunar til eflingar lífrænnar framleiðslu. Aðgerðaáætlunin byggir á tillögum Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. sem unnar voru fyrir matvælaráðherra.
Tillögur áætlunarinnar byggja á samtölum við fjölmarga aðila innanlands og styðjast við sambærilega stefnumótun á hinum Norðurlöndunum og á vettvangi Evrópusambandsins. Stjórnvöld í nágrannalöndunum s.s. framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, hafa sett sér háleit markmið um aukna hlutdeild lífrænna afurða, bæði í landbúnaðarframleiðslu landanna og á neytendamarkaði. Efling lífrænnar framleiðslu hérlendis er þannig liður í að styrkja samkeppnisstöðu Íslands gagnvart nágrannalöndunum og um leið samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu gagnvart innflutningi, segir í fréttatilkynningu frá Matvælaráðuneytinu.
Markmið um að 10% af landbúnaðarlandi verði með lífræna vottun árið 2040
Hérlendis er mun lægra hlutfall landbúnaðarlands með lífræna vottun en í nágrannalöndum og bendir flest til þess að markaðshlutdeild lífrænnar framleiðslu sé einnig lægri hér. Markmið aðgerðaáætlunarinnar er að 10% af landbúnaðarlandi á Íslandi verði komið með lífræna vottun árið 2040.
Aðgerðunum er skipt í nokkra málaflokka, sem hver um sig snýr að tilteknum hluta virðiskeðju lífrænna matvæla eða að tilteknum innviðum sem þurfa að vera til staðar til að keðjan í heild verði sem sterkust. Gert er ráð fyrir að ráðstafað verði rúmlega 60 milljónum til að ýta aðgerðaáætluninni úr vör.
Sjálfbærni og dýravelferð skipa stóran sess
„Þau skref sem lögð eru til í aðgerðaáætluninni eru nauðsynleg til að styrkja samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra. „Kröfur neytenda um lífrænar afurðir hafa aukist til muna og þar skipa til að mynda sjálfbærni og dýraheilsa stóran sess.“
Hér er hægt að lesa aðgerðaáætlunina.
-
Grænmeti í áskriftFrá: 4.995 kr. / á mánuði
-
Ketó – ungnautahakk frá Hvammi – 5 x 500 g7.975 kr.
-
Product on saleKjöt í kassa – 5 pk. hakk, 5 hamborgarar og 2 pk. gúllasOriginal price was: 13.685 kr..12.980 kr.Current price is: 12.980 kr..