Lýsing
Meyrt kjöt af angus-holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. Fallegt kjöt sem fékk að hanga í 14 daga fyrir verkun.
T-beinssteik. Kílóverð: 7.990 kr.
Kælivara.
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Hvernig er best að elda T-beinssteik?
Það eru ýmsar aðferðir við að elda stóra T-beinssteik. Hægt er að steikja á pönnu, elda í ofni eða grilla. Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið. Mikilvægt er að taka steikina út úr kæli a.m.k. hálftíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.
Ef pönnusteikt þá er gott að hita pönnuna upp á meðalhita. Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Hækkið þá hitann á pönnunni og skellið steikinni á ásamt vænni smjörklípu eða nautatólg. Snúið steikinni þegar hún er orðin vel brúnuð, um 7-8 mín. á annarri hliðinni og 4-5 mín. á hinni hliðinni fyrir medium-rare. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Fyrir mjög þykkar steikur er ráðlegt að klára eldunina í ofni. Hvílið steikina í a.m.k. 6-8 mínútur eftir eldun og skerið síðan af beininu og í sneiðar.
Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.
Bændurnir
Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen er kjötiðnaðarmaður og sér um nautaeldið.
Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.
Davíð þróaði nautaeldið í Hvammi eftir veru sína á Hvanneyri.
Nautgripirnir í Hvammi í Ölfusi fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Myndir / TB
Kjarnhiti nautakjöts
Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Hvammi er unnið og pakkað af Villt og alið á Hellu.
Kælivara.
Innihald: Angus, ungnautakjöt, holdablendingskvíga. T-beinssteik
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Villt og alið á Hellu
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.