Skip to content Skip to footer

Geitagúllas frá Snorrastöðum – 2 x 500 g

4.940 kr.

Geitagúllas frá bænum Snorrastöðum í Borgarbyggð. Geitur og kið ganga úti við fjölbreytta beit, m.a. á túnum og í birkiskógi.

Geitakjöt svipar til lambakjöts en hefur þó sitt sérstaka bragð sem mörgum líkar afar vel. Þú eldar geitakjöt með sama hætti og lambakjöt.

Kjötið er verkað í vinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal.

2 x 500 g pakkar. Frystivara. Kílóverð er 4.940 krónur.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

5 á lager

Lýsing

Búskapurinn

Á Snorrastöðum í Kolbeinsstaðarhreppi hinum forna á Snæfellsnesi hafa verið haldnar geitur síðan árið 2014. Þær hafa ávallt verið í uppáhaldi hjá bóndasyninum Magnúsi Kristjánssyni sem ákvað, þegar hann var í bændadeildinni á Hvanneyri, að fá sér þrjár geitur. Í dag eru geiturnar orðnar 17 talsins og sér hann um þær ásamt kærustunni sinni henni Elise Calesse. Geiturnar eru á húsi yfir vetrartímann en ganga við opið nema í verstu veðrum. Yfir sumartímann ganga þær til skiptis í beitarhaga heima við bæ og í Eldborgarhrauni í kjarri og birkiskógi.

Geitunum er beitt í samræmi við aðferðir auðgandi landbúnaðar þar sem skepnurnar eru færðar reglulega á milli beitarhólfa. Með því er leitast við að hámarka velferð dýranna og fara vel með jarðveg og plöntur. Kiðlingarnir koma í heiminn á vorin og þeir sem ekki eru settir á er slátrað að hausti. Að því leyti líkist geitabúskapurinn sauðfjárbúskap.

Bændurnir á Snorrastöðum láta slátra hjá Sláturfélagi Suðurlands en kjötið er unnið í heimavinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal í viðurkenndri kjötvinnslu.

Á Snorrastöðum er blandaður búskapur og vegur kúabúskapur þar þyngst.

Aðrar upplýsingar

Innihald: Geitakjöt, gúllas.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Snorrastöðum
Framleiðandi: Grímsstaðir í Reykholtsdal
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Geitalæri

1134 g, 1424 g, 1426 g, 1544 g, 1552 g, 1718 g

Þér gæti einnig líkað við…