Lýsing
Nautgripagúllas. 2 x 500 g = 1 kg. Kílóverð: 4.390 kr. Ágætt er að miða við um 200 g á mann í gúllasrétti.
Frystivara.
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus holdagripum frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Kjötgæðin eru rómuð.
Angusnautið Laki 22403 er eitt af fjórum nautum sem voru notuð úr 2022 árganginum til að blanda við íslenska stofninn og efla nautgriparæktina hér á landi. Mynd/NautísAngus með yfirburði
Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótanautin alin við fullkomnustu aðstæður í sóttkví. Mynd / TBNæringarinnihald
M.v. 100 grömm af ungnautagúllasi:
Orka: 417 kJ, 100 kcal.
Próten: 21,5 g
Fita: 1,4 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 0,5 g og ómettaðar 0,5
Kólestról: 57 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Nautgripakjöt – Gúllas.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is



Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.