Deila þessari síðu
Matland býður nú upp á lax frá fiskverkuninni Hnýfli í Eyjafirði, bæði kofareyktan og grafinn. Laxinn er ræktaður í landeldi í Öxarfirði og verkaður á Akureyri eftir gömlum og rótgrónum aðferðum.
Fiskverkunin Hnýfill var stofnuð i desember 1995 af Davíð Kristjánssyni reykmeistara, Ingveldi Jóhannesdóttur, Þorvaldi Þórissyni og Erni Smára Kjartanssyni. Faðir tveggja stofnenda hnýfils notaði orðið „hnýfill“ um menn sem honum líkaði vel við og þótti skara framúr.
Nafnið Hnýfill merkir bát sem klýfur ölduna. Sá sem ryður brautina.
Fyrsta starfsstöðin var að Skipatanga 35 á Akureyri. Markmið félagsins var reyking hverskyns sjávarafurða og sala þeirra, einnig saltaðra, þurrkaða og nýrra fiskafurða á nærmarkaði.
Gömul aðferð við að reykja fisk
Reykingin byggist á aðferðum sem þróaðar voru hjá Reykmiðstöðinni sem einn af stofnendum Hnýfils, Davíð átti og rak á árunum 1973-1985. Aðferðina má kalla gamaldags þar sem engin aukaefni eru notuð.
Eingöngu salt, vandað reykefni (þurrt sauðatað og viðarspænir) og þurrkun, sem sagt eingöngu náttúruleg efni, sem þótti mjög sérstakt á sínum tíma en er eftirsóknarvert í dag.
Árið 1999 festu eigendur Hnýfils kaup á 480 fermetra húsi að Óseyri og fluttu inn í húsnæðið um áramótin 2000. Húsnæðið var þá 15 ára gamalt, mjög vandað og snyrtilegt hús til allrar matvælavinnslu.
Vörurnar sem Hnýfill selur og framleiðir á smásölu- og mötuneytamarkað í reykvörulínunni eru: kofareyktur silungur, lax, og rauðmagi, hrefnukjöt en einnig reykt ýsa og þorskur. Einnig framleiðir fyrirtækið talsvert af gröfnum laxi sem Matland býður viðskiptavinum sínum á aðventunni ásamt reykta laxinum.
-
Kofareyktur lax – heilt eða hálft flak4.080 kr. – 7.580 kr.